Sunnusmári 1 - 410, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 71,9
Stærð 87
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 829
Skráð 25.5.2023
Fjarlægt 1.6.2023
Byggingarár
mbl.is

***BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ SÖLUMÖNNUM***

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára 1-5 í Kópavogi. 62 nýjar og glæsilegar vandaðar íbúðir. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði með flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðurs sem verður fullfrágenginn.

Íbúð 410: Er glæsileg 3 herbergja íbúð. Heildarstærð er 86,7 fermetrar og er staðsett á 4. hæð. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara og 7,5 fermetra geymsla. Góðar 6,9 fermetra svalir til suðurs.
Afhending er áætluð í apríl/maí 2023 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, opið alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi. Útgengt á 6,9 fermetra verönd til suðurs úr stofu. 

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna: www.tgverk.is 

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. 

ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Bosch. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Hafðu samband til þess að fá nánari skilalýsingu. 

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30