26 Klyfjasel 26, 109
Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá
Verð |
113,0
|
Stærð |
270
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
418
|
Skráð |
11.3.2021 |
Fjarlægt |
16.3.2021 |
Byggingarár |
1987 |
mbl.is |
|
Lundur fasteignasala sími 533 1616 kynnir:
KLYFJASEL 26. EINBÝLI/TVÝBÝLI. Efri íbúðin er laus við kaupsamning. Tvær samþykktar íbúðir. Rúmgott einbýli á 3 hæðum.Eignin skv.teikn. er samtals 302,1fm Jarðhæð (90fm) Hæð (95,7fm) og Ris ( 83,6fm) og síðan 4ra hesta gripahús/hesthús (32,4fm) fyrir 4 hesta.
En skv. skráningu Fasteignmats Ríksins149,6fm (hæð og ris) og 88,0fm (jarðhæð) og sérstætt 32,8fm hesthús (4 hestar). Húsið stendur efst í Seljahverfi á 911fm jaðarlóð. Miðhæð: rúmgóð forstofa, hol, stórt eldhús með fallegum innréttingum, þvottahús og búr innaf eldhúsi, borðstofa og stofa með útgengi á svalir. Ris: góður stigi í ris, góð lofthæð, 3 kvistir sjónvarpshol, baðherbergi með baðkari og innréttingu og síðan 4 rúmgóð svefnherbergi, öll með skápum. Gengið frá 2 svefnherbergjum út á svalir. Gólfefni á miðhæð, flísar og gott parkett, dúkur á eldhúsi og á risi eru dúkar.
Falleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðri útleigu, öll nýlega endurnýjuð. Sérinngangur, forstofa/hol, snyrting, stórt eldhús með fallegum ljósum innréttingum, rúmgott baðherbergi með steyptum sturtuklefa, gluggi á baði og góð stofa og stórt svefnherbergi. Þvottahús innan íbúðar. Gólfefni: flísar pg plastparkett.
Heildareignin er öll mjög rúmgóð og staðsetningi sérlega áhugaverð. Gert er ráð fyrir 30-40fm bílskúr vestan við húsið.
Hesthús/gripahús er 32,2fm með 4 básum fyrir 4 hesta,heygeymslu, hnakkageymslu og útigerði. Á næstu lóð hefur hesthúsi verið breytt í íbúðareiningu og að sjá tekist vel til.
Úpplýsingar veitir LUNDUR s.533-1616
lundur@lundur.is kristjan@lundur