Jaðar 17, 311

Fjarlægð/Seld - Eignin var 927 daga á skrá

Verð 160,0
Stærð 40.000.000
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 0
Skráð 18.6.2017
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár
mbl.is

ALLT FASTEIGNIR fasteignasala sími 560-5515 Páll sími 698-6655  pall@alltfasteignir.is
 - Þorbjörn Pálsson lögg. fasteignasali  kynnir í einkasölu:
Landið er staðsett á Mýrum um 13 kílómetra akstursleið vestur frá Borgarnesi, ekið í vestur inn á þjóðveg 533 (beygt við skilti Álftanes), og yfir brúna hjá Hrafnkelsstöðum inn á þjóðveg 540, ekið sem leið liggur að brúnni við Hvítasteinslæk, liggur landið meðfram læknum, laxveiðiáin Álftá er neðan við veginn og veiðihús örstutt frá.

Svæðið er mjög fjölbreytilegt  en skiptist aðallega í falleg klettabelti og gróin tún, öll þjónusta og afþreying er í næsta nágrenni ásamt mörgum af helstu náttúruperlum okkar Íslendinga.
Landið er 40 hektarar að stærð og búið er að skipuleggja og skipta niður landinu í 114 sumarhúsalóðir um 3.300 fm. að stærð, lóð fyrir þjónustuhús/verslun/leiksvæði/gámasvæði og tjaldsvæði, gert er ráð fyrir mjög góðri aðkomu að lóðunum ásamt annarri þjónustu á svæðinu.
Uppdrættir/teikningar eru til samþykktar hjá byggingaryfirvöldum í Borgarbyggð.
Gert er ráð fyrir að verð lóða verði á bilinu 1.200.000-1.500.000 kr eftir stærð þeirra fyrir utan þjónustulóð og tjaldsvæði.



Kostnaður kaupanda: 
1. Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er, 0,8% eða lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati eignar.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.000  af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 40.000 auk vsk.  sbr. kauptilboð.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13