Skógarbraut 918, 262

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 36,5
Stærð 62
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 593
Skráð 30.1.2023
Fjarlægt 1.2.2023
Byggingarár 1978
mbl.is

RE/MAX fasteignasala kynna til sölu: Björt, rúmgóð og vel skipulögð tveggja herbergja 60,5 fm íbúð á 1. hæð (nr. 0107) við Skógarbraut 918, 262 Reykjanesbæ. Íbúðin er mikið endurnýjuð og afhendist með gólfefnum. Eigninni fylgir 1,1 fm geymsla (0127). Samtals stærð er 61,6 fm. Íbúðin samanstendur af einu svefnherbergi, forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi, og baðherbergi. Sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu eru á 1 hæð.

Birtar myndir eru af íbúð sem er á efstu hæð ( íbúð merkt 301 )

Nánari lýsing:
Anddyri er með parket og fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu og flísar á milli skápa og parket á gólfi.
Hjónaherbergið er með parket á gólfi og fataskáp.
Stofan er með parket á gólfi og með útgengi út á sér afnota reit sem hægt er að setja pall sem snýr vel á móti sól í suður.
Baðherbergi er mjög rúmgott með flísum á gólfi með sturtu. Fallegar hvítar innréttingar og tengi fyrir þvottavél.

Íbúðirnar voru byggðar árið 1978 og farið var eftir þágildandi reglugerð. Á meðan á endurbótum stóð voru sendar inn breytingar á aðaluppdráttum og lagnateikningum og þær samþykktar af byggingarfulltrúa. Íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum. Harðparket á gólfum frá Húsasmiðjunni, flísar á baðherbergi eru frá Álfaborg. Innihurðar eru frá Húsasmiðjunni. Fataskápar í herbergjum eru frá Ikea. Ofnakerfi hússins er tengt sameiginlegu forhitarakerfi tengt í tækniherbergi 1.hæð, ofnar eru voryl ofnar, nýir frá Ofnasmiðju Suðurnesja (Byko). Led ljóskúplar á baðherbergi eru frá Rönning. Greinatafla er í alrými hverrar íbúðar en aðaltafla hússins og mælatafla fyrir hverja íbúð er í tækniherbergi 1.hæð. Veggir eru ýmist byggðir upp á eftirfarandi máta. Á milli íbúða eru þeir ýmist steyptir eða hlaðnir og uppfylla núgildandi brunakröfur. Veggir inni í íbúðinni hefðbundnir gifsveggir. Langir hafa verið endurnýjaðir,neysluvatn ofnalagnir og frárennsli út fyrir sökkul. Dregið hefur verið nýtt raflagnaefni í þær lagnaleiðir sem voru til staðar og nýjum leiðum bætt við að hluta.

Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar og eru frá Parka, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur valkostur en eru ekki innifalin í verði en tækin eru Electrolux frá Húsasmiðjunni. Blástursofn og keramik helluborð eru einnig Electrolux frá Húsasmiðjunni. Innbyggð vifta er fyrir ofan helluborð og kemur frá Parka. Hreinlætistæki eru frá Byko.
Baðherbergi Innréttingar, vaskaskápur með skúffu og speglaskápur með led lýsingu að neðan eru frá Parka. Öll hreinlætistæki eru frá Byko. Flísar eru á gólfum og hluta af veggjum. Vélrænt útsog með stýringu í tækniherbergi 1 hæð.

Sjá má nánari upplýsingar í skilalýsingu seljanda sem kemur með söluyfirliti.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16