Eskiás 1C (214), 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 4 daga á skrá

Verð 71,9
Stærð 80
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 895
Skráð 13.11.2022
Fjarlægt 18.11.2022
Byggingarár
mbl.is

Miklaborg kynnir: 4ra herbergja íbúð í nýju litlu fjölbýli með sérinngangi á góðum stað í Garðabæ. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar fyrir utan megingólfefni en flísar á baðherbergjum/þvottahúsi. Geymslur innan íbúðanna. Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 90.0 fm, með geymslu sem er innan íbúðarinnar. Bílastæði eru á lóð og gert er ráð fyrir nokkrum fjölda hleðslustæða. Svalir eru út frá stofu íbúða á efri hæðum. Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð. Íbúðin skiptist í :forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 3 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla er innan íbúðarinnar og sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jko@miklaborg.is - löggiltur fasteignasali.

Afhending: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.  Innréttingar og hurðir: Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir verða hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir (Jeld-Wen Moralt).
Baðherbergi/þvottahús: Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
Heimilistæki: Eldhús skilast með blástursofni, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe.
Gólfefni:Íbúðum verður skilað með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft. 
Frágangur utanhúss: Útveggir verða einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni.Svalahandrið eru úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Leiksvæði.
Rafbílahleðsla: Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.
Ath. innimyndir eru einnig tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar.

Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, jko@miklaborg.is - löggiltur fasteignasali í síma 775 -1515

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22