Kinnargata 43, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá

Verð 79,9
Stærð 100
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 800
Skráð 22.9.2022
Fjarlægt 7.10.2022
Byggingarár 2022
mbl.is

Lind Fasteignasala og Auður Magnúsdóttir kynna nýjar og glæsilegar 2-4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýli á besta stað í Urriðaholtinu Garðabæ. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp, frystir og uppþvottavél.
Afhending í október 2022.


Íbúð 101: 99,9 fm, 3ja herbergja íbúð á 1.hæð með sérnotaflöt af lóð við suð-austur hlið íbúðarinnar.

Kinnargata 43-45 er 15 íbúða fjölbýli á þremur hæðum með aðalinngangi á 2. hæð ásamt lokuðu bílastæðahúsi á 1.hæð. Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.
Aðalhönnuður hússins: Arkís arkitektar ehf.


Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss ásamt eldunareyju, innréttingin er frá Voke III, framhliðar eru matt gráar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá Electrolux að undanskildum háfum sem eru af gerðinni Elica. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir.
Alrými: Parket á gólfi, opið og bjart rými, útgengt út á sérnotaflöt.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. 13,1fm.
Herbergi: Parket á gólfi, fataskápur. 10,1 fm.
Baðherbergi: Gráar flísar 60x60 að stærð á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta, sturtutæki eru hitastýrð og innbyggð. Innréttingin er frá Voke III, framhliðar matt gráar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski.
Þvottahús: Innaf baðherbergi, rennihurð á milli rýma, innrétting undir þvottavél og þurrkara framleidd af Voke III grá að lit.
Sérnotareitur: Við suð-austur hlið íbúðarinnar.
Geymsla: Í sameign, 6,7 fm.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.

Fasteignaljósmyndir sýna útlit innréttina og baðherbergja en eru ekki úr eigninni sjálfri.

Lóð: Lóðir verða frágengnar, frágengin bílastæði og hellulagðar gönguleiðir. Sameiginleg útisvæði verða frágengin í samræmi við lóðarhönnun. Grassvæði verða fágengin og gróðurbeð grófjöfnuð, gróður fylgir ekki. Séreignareitir verða frágengnir en girðingar, skjólveggir o.þ.h fylgja ekki. Leiktæki og búnaður á lóð fylgir ekki.
Aðkoma að húsi verður hellulögð og snjóbræðsla þar sem við á samkvæmt lagnateikningum. Aðalinngangur er á 2.hæð og bílastæðahús á 1.hæð.
Gólf eru parketlögð harðparketi frá Ebson ehf. og gólf í baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Ebson ehf.
Veggir og loft innan íbúða eru sandspartslaðir og málaðir ljósum lit
Innihurðar eru yfirfelldar og sprautulakkaðar (hvítar) af gerðini Dana frá Parka ehf.
Innréttingarnar eru af vandaðri gerð frá Voke III, framhliðar mattsvartar að lit. Borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski.
Eldhústæki eru Electrolux að undanskildum háfum sem eru af gerðini Elica. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgja. 
Hreinlætistæki eru frá Grohe, Salerni eru upphengd og með innbyggðum skolkassa í vegg gerð Grohe/Laufen.
Burðakerfi hússins er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með vönduðum álklæðningum frá Áltak einnig er 1 hæð og hluti 2 - 4 hæðar með steinplötum frá Cosentino sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Gluggar eru úr ál/tré kerfi frá Velfag og glerjaðir með einangrunargleri.
Bílastæði 8 bílastæði eru í bílageymslu og gert er ráð fyrir 15 úti bílastæðum fyrir Kinnargötu 43-45 og þar af 2 fyrir hreyfihamlaða.

Frekari upplýsingar í skilalýsingu hjá fasteignasala.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.

Nánari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12