Eskiás 1G, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 53 daga á skrá

Verð 71,9
Stærð 80
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 893
Skráð 27.11.2022
Fjarlægt 20.1.2023
Byggingarár 2022
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Sérlega vel skipulögð fullbúin 80,5 fermetra fjögra herbergja íbúð merkt 0205 á annarri hæð í Eskiási 1G, nýju tveggja til þriggja hæða fjölbýli á góðum stað í Garðabæ. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni öll með fataskápum, skemmtilegt alrými með afar góðum svölum til vesturs inn í garð hússins þar sem sólar nýtur hluta úr degi, falleg eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi og innbyggðum ísskáp, baðherbergi er vel hannað með flottum flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, innréttingu, handklæðaofni og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Forstofa er með stórum fataskáp. Geymsla innan íbúðar. Sérinngangur er í íbúðina og ekki gengið í gegnum sameign innanhúss.
Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina. Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.
Sækið söluyfirlit hér.

Íbúðin er tilbúin til afhendingar fullbúin með vönduðum innréttingum, flísalögðu baðherbergi og verður afhent með parketi á gólfum. Innréttingar í eldhúsi er afar vandaðar, frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir eru hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir. Baðherbergi/þvottahús er forframleitt og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (umboðsaðili Parki ehf) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð. Eldhús er með blástursofni, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum. Vifta með kolasíu er í efri skápum yfir helluborði en þar sem ekki eru efri skápar yfir helluborði er gert ráð fyrir möguleika á að bæta við viftu. Öll blöndunartæki eru að vandaðri gerð frá Grohe. Á baðherbergjum eru tækin krómlituð en í eldhúsi eru vaskur og blöndunartæki svört. Íbúðin er afhent í núverandi ástandi með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft. Slökkvitæki og reykskynjari fylgja íbúðinni. Dyrabjalla og póstkassi er við inngang. Útveggir hússins eru einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni. Svalahandrið er úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum, sem eru skráðar 5,6 fermetrar. Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Leiksvæði. Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Vel skipulögð fjögra herbergja íbúð á vinsælum stað í Garðabænum. Hverfið er vel hannað og mun njóta vinsælda í framtíðinni. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1.
Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
 

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43