Vallarbraut 12, 260

Fjarlægð/Seld - Eignin var 21 dag á skrá

Verð 40,0
Stærð 85
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 469
Skráð 29.12.2020
Fjarlægt 19.1.2021
Byggingarár None
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg og afar vönduð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á fyrstu hæð merkt: 0105, í nýju og glæsilegu 4ra hæða, 15 íbúða fjölbýlishúsi í Reykjanesnes. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Grindinni. Afhendist fullbúin með gólfefnum.   Áætlaður afhendingatími Apríl - Maí 2021.  Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 692-3344 eða hronn@fstorg.is.

Íbúðin er skráð samtals 85,2 fm og skiptist þannig: rúmgott anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús  og góðar yfirbyggðar suður svalir. Hiti í gólfum og aukin lofthæð. Frábær staðsetning þar sem afar stutt er í alla heltu þjónustu svo sem verslanir, skóla og leikskóla.  
Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum skáp.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með gólfsíðum gluggum og vandaðri rennihurð út á svalir. 
Eldhús: Glæsilegt eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, keramikhelluborði og vönduðum ofni í vinnuhæð.
Svefnherbergi #1: Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi #2: Rúmgott herbergi með góðum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með sturtu, góðri innréttingu og salerni. Gólf og veggir flísalagðir.
Þvottahús: Innaf baðherbergi er vel búið þvottahús með góðri innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð.
Geymsla: Læst geymsla fyrir hverja íbúð er á sameign.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 692-3344 eða hronn@fstorg.is.

BÓKIÐ SKOÐUN:
TÖLVUPÓSTUR: SMELLIÐ HÉR, FACEBOOK: SMELLIÐ HÉR

 
Íbúðirnar eru vandaðar og vel hannaðar. Um eina tegundir af íbúðum er að ræða, auk hlutdeildar í sameign. Geymslupláss fylgir hverri íbúð, auk þess sem í hvoru húsi fylgir sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á 1. hæð. Þá fylgir með sameiginlegt sorpgerði og merkt bílastæði fyrir hverja íbúð. Búið er að leggja raflagnir fyrir hleðslustöðvar bifreiða við eitt bílastæði hverrar íbúðar. Íbúðum verður skilað fullfrágengnum, með sameign og lóð samkvæmt neðangreindri skilalýsingu:
Frágangur íbúða inni:
Íbúðum verður skilað með handslökkvitæki og reykskynjurum.  Gólf: Hágæða harðparket er á gólfum, flísar eru á gólfum baðherbergis/þvottahúss og anddyris. Gólf í geymslum eru með epoxy sem nær uppá veggi.
Veggir: Steyptir veggir eru spartlaðir og málaðir. Léttir innveggir eru spartlaðir og málaðir. Fyrirkomulag innveggja verður í samræmi við samþykkta byggingarnefndarteikningu. Veggir verða málaðir í ljósum lit. Baðherbergisveggir skilast flísalagðir að hluta.
Loft: Steypt loft eru slípuð, spörtuð og máluð í ljósum lit.
Innréttingar: Skápar og innréttingar eru útbúnir úr 16 m grá plasthúðuðu spónaplötuefni að innanverðu. Sýnilegi fletir eru útbúnir úr efni frá Innval/Egger. Black-Brown Thermo Oak H1199 ST12. Borðplötur eru úr kvarsi. Plast frá Innval/Egger light concrete F272 ST9. Höldur á frontum frá Innval/Egger svartar mattar Inréttingar eru framleiddar hjá Grindinni ehf Grindavík.
Innihurðir: Hurðir verða með lykillæsingu og hurðarhúnar verða úr burstuðu stáli. Hurðir eru hvítlakkaðar, með felli þröskuldum og með yfirfelldum hurðarkörmum og gereftum.
Eldhús: Eldhús skilast fullbúin með tækjum frá AEG, þar með talið keramikhelluborð, bakaraofn, uppþvottavél og ísskáp. Stálvaskur er fræstur í borðplötu. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð frá Grindin ehf og er með mjúklokunarbúnaði, vaski og blöndunartækjum frá Grohe. Lýsing undir efri skápum þar sem við á.
Baðherb: Baðherbergisgólf eru flísalögð með ljósum flísum. Veggir að hluta til eru flísalagðir upp í loft með ljósum flísum. Í baðherbergjum er sérsmíðuð baðinnrétting með handlaug, blöndunartækjum og spegli. Klósett er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Stór sturta með ílöngu niðurfalli í gólfi, skilveggur úr hertu gleri. Vélrænt útsog er frá baðherbergi og þvottahúsi, með hljóðlátri viftu.
Þvottaherb: Gólf í þvottaherbergi er flísalagt með ljósgráum flísum. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og sér innrétting með skolvaski.Í íbúð 0202 er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem teikningar sýna.
Svefnherbergi: Í svefnherbergjum er harðparket á gólfum og fataskápur. Fataskápar eru þar sem teikningar sýna.
Raflögn: Raflögn er fullfrágengin. LED Ljós fylgja í eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og anddyri í öllum íbúðum, ýmist ljóskúplar og innfelld lýsing.Í öðrum rýmum innan íbúðar er skilajós.
LED Útiljós eru á stigapalli og svölum, Uppsettur reykskynjari fylgir hverri íbúð. Ljósleiðaratenging er í hverri íbúð. Lagnaleiðir fyrir bílhleðslustöðvar eru frágengnar í jörðu fyrirhverja íbúð.
Forstofa: Í forstofu eru ljósar flísar á gólfum og fataskápur.
Geymslur: Hverri íbúð fylgir skápur í sameign. Gólf í geymslum verða lögð epoxy sem nær upp á veggi. Veggir (einangraðir léttir veggir) verða málaðir. Á 1.hæð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Tæknirými er á 1. hæð með sérinngang.
Pípulögn Upphitun hússins er með gólfhita í ílögn. Hita- og neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum. Ljósleiðari eða nettenging verður tengd úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu. Í öðrum herbergjum eru lagnaleiðir fyrir tölvu/síma og loftnet. Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð. Sameign samanstendur einvörðungu af geymslurými og inntaksrými húsanna. Sameign verður upphituð með ofnum og fullfrágengin.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2