Sunnusmári 1 - 107, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 76,9
Stærð 98
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 787
Skráð 25.5.2023
Fjarlægt 1.6.2023
Byggingarár 2023
mbl.is

***BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ SÖLUMÖNNUM***

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára 1-5 í Kópavogi. 62 nýjar og glæsilegar íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði með flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðurs sem verður fullfrágenginn.


Íbúð 107: Er glæsileg 3ja herbergja íbúð. Heildarstærð er 97,7 fermetrar og er staðsett á fyrstu hæð. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara og 7,8 fermetra geymsla. Stór 17,4 fermetra verönd til suðurs. Afhending er áætluð í apríl/maí 2023 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. Nánari lýsing hér neðar.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna: www.tgverk.is 


BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með eyju í alrými með stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á 17,4 fermetra verönd til suðurs úr stofu. 


Anddyri: Með fataskápum frá GKS.
Svefnherbergin: Eru með fataskápum frá GKS.
Stofa: Með gluggum til suðurs. Opið við eldhús.
Verönd: Til suðurs sem er 17,4 fermetrar að stærð.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu frá Nobilia og eldhústækjum frá Bosch (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti). Eyjuháfur yfir eyju.
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. 
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.
Sérstæði: Er sérmerkt í lokuðum bílakjallara.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.

ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 


Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Ýmist með dökkri viðarárferð (hnota frá GKS) en svörtum efri skápum eða með hvítum skápum en efri skápar með dökkri viðarárferð (hnota frá GKS). Fataskápar eru hvítir. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Bosch. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Aðalhönnuður: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Hafðu samband til þess að fá nánari skilalýsingu. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27