Völuteigur 31, 270
Fjarlægð/Seld - Eignin var 344 daga á skrá
Verð |
950,0
|
Stærð |
4.701
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
202
|
Skráð |
6.11.2019 |
Fjarlægt |
15.10.2020 |
Byggingarár |
2007 |
mbl.is |
|
Trausti fasteignasala kynnir: Völuteigur 31, 270 Mosfellsbæ. Um er að ræða 4701,4 fm eign á 15.048 fm afgirtri lóð. Fáar eignir á höfuðborgarsvæðinu með jafn stórt úti svæði sem bíður upp a mikla möguleika. Eignin skiptist annars vegar í 2.736,5 fm iðnaðarhúsnæði byggt 2007 (hús A) og hins vegar 1.964,9 fm húsnæði byggt 1985 (hús B). Á lóðinni er 1200 ampera heimtaug og þar af leiðandi getur húsnæðið hentað fyrir ýmiskonar iðnað.
Nánri lýsing:
Hús A: Húsið er að mestum hluta undir iðnaðarsali. Í framenda hússins er sýningarsalur á fyrstu hæð. Á annarri hæð er skifstofurými, matsalur og búningsklefar með sturtu. Í skrifstofu hlutanum er stórt opið vinnurými, fundarherbergi og tvær lokaðar skrifstofur. Mikið gluggahaf er á sýningarsal og skrifstofum. Í iðnaðarsal er rúmlega 7 metra lofthæð og 4 innkeyrsluhurðar eru á annarri hlið hússins og 4 á hinni.
Hús B: Húsið er að mestu salur með innkeyrsluhurðum á annarri langhliðinni. Lofthæð er rúmlega 7 metrar. Skrifstofuhúsnæði er í viðbyggingu við aðalsalin og er hún í dag notuð sem íbúðarherbergi.
Lóðin: Lóðin er 15.048 fm og er nýtingarhlutfallið á henni í dag því aðeins 0,31. Lóðin er afgirt og stendur þannig að ekki er mikil sjónmengun af því sem geymt er á henni. Svæðið býður upp á mikla möguleika fyrir fyrirtæki sem þurfa útipláss til geymslu eða ef vinnsla krefst þess að hluti starfssemi fari fram utandyra.
Nánari upplýsingar varðandi eignina veitir Garðar Hólm, löggiltur fasteignasali í síma 899-8811 eða gh@trausti.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.