Urriðaholtsstræti 42, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá

Verð 74,9
Stærð 83
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 902
Skráð 2.6.2023
Fjarlægt 16.6.2023
Byggingarár
mbl.is

Hraunhamar kynnir þriggja herbergja íbúð 83 fermetra á efstu hæð í glæsilegu tíu íbúða lyftuhúsi í Garðabæ. Íbúðin er til afhendingar í febrúar næstkomandi. Glæsileg útsýnisíbúð. 

Eignin er 83 fermetrar og skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi og aðalrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Frá stofu er útgengt á fínar svalir. 

Mjög góð staðsetning í lokuðum botnlanga og góð fyrir útivistarfólk þ.s örstutt er í útivistarparadísina í Heiðmörk og liggja stígar þangað. Einnig er falleg gönguleið í kringum Urriðakotsvatn og í næsta nágrenni eru 2 golfvellir. Stutt er í verslun og þjónustu í Kaupstað.


ATH. MYNDIR ERU AF SÝNINGARÍBÚÐ OG ERU BARA TIL VIÐMIÐUNAR, SJÁ NÁNAR TEIKNINGAR ÍBÚÐAR. 

Allar innréttingar eru frá VOKE3 og steinplata í eldhúsi.  
Vönduð heimilistæki frá AEG.
Aukin lofthæð, gófhiti, innfelld lýsing í loftum.
Flestum íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Innangengt í bílakjallarann út í sameign.


Húsið er byggt samkvæmt arkítektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt.

Nánari lýsing íbúðar 402:
Forstofa með fataskápum.
Stórt hjónaherbergi með fataskápum. 
Fínt barnaherbergi.
Stofa/eldhús í opnu rými, falleg innrétting, eyja og vönduð eldunartæki frá AEG.
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, handklæðaofn,  rúmgóð sturta með innfelldum tækjum, þvottaaðstaða á baðherberginu. 
Stæði í bílageymslu fylgir þessari íbúð og sér geymsla í sameign.

Lyftuhús með góðu aðgengi.
Viðhaldslétt hús með ál/tré gluggum og klætt að utan með álklæðningu.
Húsið er á fjórum hæðum og eru einungis 10 íbúðir í húsinu.
Rúmgóðar og skjólsælar svalir.
Geymslur, bílageymsla og hjólageymsla á jarðhæð.


Þetta er falleg íbúð vel staðsett, svalir snúa til suðurs. Rennihurð út á svalir
Sérlega vandaðaðar íbúðir sem vert er að skoða. 

_____________________________________________________________________________________
BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS
Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson sölustjóri  s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is

Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s:896-6076, arsaell@hraunhamar.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23