Skipholt 17, 105
Verð |
102,5
|
Stærð |
345
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
297
|
Skráð |
4.5.2021 |
Fjarlægt |
|
Byggingarár |
1968 |
mbl.is |
990917
|
Klettur fasteignasala kynnir í einkasölu, Skipholt 17, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-00, fastanúmer 201-0746, samtals 345,7 fm, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Um er að ræða glæsilegt verslunarrými með stórum gluggum á besta stað í Skipholti í vönduðu húsi. Innaf verslunarrými eru þrjár skrifstofur, eldhús og opið rými. Efri hæðin er 222 fm og neðri hæðin er 124 fm. Á neðri hæð eru lager rými og geymsla, þar sem er innkeyrsluhurð fyrir vörumóttöku. Eigandi rýmisins er rótgróið fyrirtæki sem hefur átt mikilli velgengi að fagna í rýminu, en er nú að minnka við sig vegna breytinga í rekstri. Veðlán er áhvílandi sem er mögulega hægt að yfirtaka.
Eigandi er tilbúinn til að skoða með skipti á eignum, ef um er að ræða atvinnuhúsnæði/íbúðarhúsnæði.
Eignin Skipholt 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-0746.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Örn Jónasson lögg.fasteignasali og lögmaður, í síma 7708200, tölvupóstur jonas@anno.is