Tjarnarbrú 18, 780

Fjarlægð/Seld - Eignin var 870 daga á skrá

Verð 24,8
Stærð 92
Tegund Tvíbýli
Verð per fm 270
Skráð 14.8.2017
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1958
mbl.is

Tjarnarbrú 18, 1. hæð er falleg og björt íbúð í tvíbýli við næsta nágrenni við alla þjónustu á Höfn. Íbúðin er með nýjum gluggum og gleri. Nýlega var skipt um þak, þakkant og þakrennur. Sömuleiðis er nýtt parket á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergið sem er flísalagt. Gott aðgengi er að húsinu og bílastæði fylgir íbúðinni. Íbúðin skiptist í hol og eldhús, baðherbergi, stofu og þrjú rúmgóð svefnherbergi.

Komið er inn í flísalagt anddyri (sameign), með sameiginlegt þvottahús á vinstri hönd og stiga upp á 2. hæð á hægri hönd. Undir stiganum er geymsla sem tilheyrir íbúðinni. Eldhúsinnréttingin er nýleg og stofan er björt og rúmgóð með hurð út á hellulagða verönd. Lóðin umhverfis húsið er frágengin með grasi og möl í bílastæði.

 

Eignaskiptayfirlýsing fyrir húseignina nr. 18 við Tjarnarbrú, dags. 13. maí 2017 liggur fyrir. Skv. eignaskiptayfirlýsingunni er neðri hæð hússins 47,24% af eigninni en efri hæð hússins 52,76% og fylgir bílskúrsréttur efri hæð hússins, auk þess sem risið tilheyrir efri hæðinni. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13