Drekavellir 57, 221

Verð 119,9
Stærð 188
Tegund RaðPar
Verð per fm 639
Skráð 19.9.2023
Fjarlægt
Byggingarár 2007
mbl.is 1163360

Glæsilegt 187,5 fm raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Drekavelli 57 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 158,4 og bílskúr 29,1 fm alls 187,5 skv. Fasteignaskrá. Vandaðar innréttingar, innbyggð ljós, innbyggt ryksugukerfi og hátt til lofts. Stutt er í leikskóla og skóla. Eignin er staðsett innarlega í lokuðum botlanga á skjólsömum stað
 
Nánari lýsing:


Rúmgóð forstofa með góðum skápum og flísum á gólfi.
Gestasalerni innaf forstofu, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, falleg, lítil innrétting og gluggi.
Sjónvarpshol tengir stofu og eldhús við herbergjagang.
Stofa og eldhús í björtu alrými, hátt til lofts og er aðskilið að hluta með lágum vegg.
Eldhúsið er mjög vandað. Dökk innrétting með mjög miklu skápaplássi. Ljóst granít er á öllum bekkjum. Innfelld uppþvottavél í vinnuhæð, ofn í vinnuhæð, innbyggð ryksuga og flísar á gólfum.
Stofan björt, rúmgóð og hátt til lofts. Parket á gólfum. Þaðan er gengið út á stóra timburverönd.
Svefnherbergi 1: Hjónaherbergi með skápum og hurð út á verönd.
Svefnherbergi 2: er rúmgott með fellistiga upp á opið geymsluloft, inn af því er einnig lokuð geymsla.
Svefnherbergi 3: er innaf forstofu og er einnig rúmgott með flísum á gólfi.
Baðherbergið er í sérflokki, bæði rúmgott og vandað með hornbaðkari, góðri innréttingu, mjög stór sturta og tveimur handklæðaofnum. Öflug vifta og opnanlegur gluggi.
Þvottahús með  góðri innréttingu, bæði skápar og skúffur.  Stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Tvær tauskúffur fyrir neðan þvottavél. 
Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúr.
Bílskúr er flísalagður með góðri lofthæð. Geymsluloft er yfir hálfum skúrnum með áföstum stiga.
Í bílskúrnum er rafmagn, heitt og kalt vatn, tengingar fyrir gólfhita og varmaskiptir.
Bílskúr var stækkaður á kostnað geymslunnar, sem upprunalega átti að vera í enda skúrsins.
Hurð er úr bílskúr út á veröndina.
Garður,  snýr í suður, og er girtur af með skjólveggjum. Sólpallur er við húsið og garður tekur við af honum sem nýtist sem leiksvæði. Sólpallurinn er stór og þar er nýlegur heitur pottur. Geymsluskúr er í garði, um það bil 10 – 12 fm.  Nýlega er búið að tengja útiljós, bæði á skjólveggi og við heita pottinn. Það er tengt á nýja töflu í geymsluskúr.
þvottasnúrur eru til staðar.
Hiti í gólfum.
Innfelld lýsing í loftum.
Innbyggt ryksugukerfi í öllu húsinu.
Bílastæði með stimplari steypu og snyrtilegu ruslagerði.

Vönduð eign sem vel hefur verið hugsað um á þessum frábæra stað á Völlunum þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttahús, sundlaug og verslanir.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40