Lónkot Skagafirði, 566

Fjarlægð/Seld - Eignin var 154 daga á skrá

Verð 290,0
Stærð
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 31.7.2020
Fjarlægt 1.1.2021
Byggingarár None
mbl.is


Fasteignamiðstöðin hefur fengið eina helstu náttúruperlu Skagafjarðar til sölu, hina rómuðu sjávarjörð og sveitasetur, Lónkot landnúmer 146557.
Á jörðinni hefur verið rekin vinsæl menningartengd ferðaþjónusta til fjölda ára við Gullnu ströndina eins og Höfðaströndin er nú kölluð með einstakri útsýn til Málmeyjar, Drangeyjar og Þórðarhöfða. Heimalandið er um 60 hektarar með berjalandi og strandlengju með silungsveiði. Fjölbreytt fuglalíf þrífst á jörðinni og var þar töluvert æðarvarp þegar það var stundað. Möguleiki á sjósókn er frá ströndinni. 

Malbikaður vegur liggur frá þjóðvegi með stóru bílaplani. Húsakostur er m.a. veitingahús með góðri aðstöðu í eldhúsi, setustofu, gistirými, þvottahúsi auk baðhúss með heitum potti. Íbúðarhúsið hefur verið endurnýjað. Útsýnisturn og skemma, gosbrunnur, tjaldstæði og tjaldgrind, fyrir samkomur, yfir mikla hringlaga grjóthleðslu. Einnig eru þar fleiri vel unnar grjóthleðslur. Búið var að koma upp níu holu golfvelli.
Í Lónkoti var rekið eitt helsta sælkeraeldhús landsbyggðarinnar og eigendur Lónkots frumkvöðlar og hugmyndasmiðir að Matarkistu Skagafjarðar. Á jörðinni eru nokkur útilistaverk eftir íslenska myndhöggvara. Minnisvarði um Sölva Helgason var afhjúpaður eftir Gest Þorgrímsson árið 1995. Höggmynd um þjóðsagnarpersónuna Ólöfu í Lónkoti eftir Pál á Húsafelli var afhjúpuð árið 1999 og minnisvarði við Eldhring staðarins einnig eftir Pál árið 2000 í tilefni þúsaldarmóta. Höggmyndin Sólfar eftir Örn Þorsteinsson frá árinu 2002 ásamt fleiri verkum úr einkasýningu hans Steinar úr sjó. Í gengum tíðina hafa valinkunnir listamenn þjóðarinnar sýnt verk í veitingahúsi staðarins. 

Tilvísunarnúmer 10-1232 / 18-0182 / 20-1828.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími 550 3000
Sjá einnig:  fasteignamidstodin.is / fasteignir.is /mbl.is/fasteignir/  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is

Magnús Leópoldsson lögg.  fasteignasali gsm. 892 6000  magnus@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm. 899 5600  maria@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42