Verð | Tilboð |
Stærð | 218 |
Tegund | Einbýli |
Verð per fm | |
Skráð | 5.5.2010 |
Fjarlægt | 1.1.2020 |
Byggingarár | 1959 |
mbl.is |
Valhöll fasteignasala sími 588 4477 kynnir: Ennisbraut Ólafsvík.
Húsið er samkvæmt fasteignamati alls 218,5 fm á tveimur hæðum og íbúð á báðum hæðum. Gengið er inn í forstofuna á efri hæðinni, sem er 113,5 fm, af tröppum og steyptri stétt. Á henni eru flísar á gólfi. Úr forstofunni er komið inn á stórt parketlagt hol. Til vinstri er stofan en til hægri eru þrjú herbergi og baðherbergi. Á stofu og herbergjum er parket. Úr holinu er gengið inn á baðherbergið sem er nýlega flísalagt í hólf og gólf. Úr holinu er einnig gengið í eldhúsið og þar er dúkur á gólfum og innréttingin er upprunaleg.
Úr eldhúsinu er gengið niður steyptar tröppur á neðri hæðina sem er 105 fm. Á neðri hæðinni er miðstöðvarrými, geymsla, rúmgott hol, þrjú herbergi, baðherbergi, stofa og eldhús. Húsið er hitað með vatnsofnum. Flestir gluggar í húsinu eru nýlegir og þak er í lagi. Húsið er klætt með steni að utan. Húsið stendur á sjávarbakka á góðum stað í bænum með góðu útsýni. Byggingarefni og ár: Steinsteypa 1959.
Óskað er eftir tilboðum í eignina
Uppl.veitir Pétur í síma 893 4718 eða peturj@valholl.is