Heiðarbrún 43B, 810
Fjarlægð/Seld - Eignin var 11 dag á skrá
Verð |
120,0
|
Stærð |
219
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
547
|
Skráð |
2.10.2022 |
Fjarlægt |
14.10.2022 |
Byggingarár |
2021 |
mbl.is |
|
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús Fasteignasala kynna:
Heiðarbrún 43B Hveragerði, nánast nýtt, 5-6herb. vandað og glæsilegt 194,2fm steinsteypt einbýli með 25,2fm bílskúr, samtals 219,4fm.
- Mjög einfalt að stúka af sér ca. 60fm, þriggja herb. íbúð til útleigu í öðrum enda hússins. - Húsið er staðsteypt, sjónsteypa á framhlið þess en kvars ákast á bakhlið og endum, gluggar og hurðir úr tré, pallar með skjólgirðingum beggja vegna við inngang sem er fyrir miðju húsi, mulningur í lóð og innkeyrsla hellulögð.
Í því eru forstofa, tvö eldhús og tvær stofur hvaðan gengt er út á palla útifyrir báðum, þrjú baðherbergi, fjögur svefnherbergi og möguleiki á því fimmta, herbergjagangur eftir endilöngu húsinu og svo bílskúr með góðu geymslulofti, innkeyrsludyrum, gönguhurð út, - og inn í forstofu.Komið er inn í góða
forstofu með skáp fyrir yfirhafnir. Stærra
eldhúsið inn til hægri og
stofa þar í framhaldi í vesturenda hússins, en gengt í
bílskúr úr forstofu á vinstri hönd og herbergjagang beint innaf forstofunni. Í
eldhúsi er vönduð innrétting frá IKEA, tveir bakarofnar frá Gorenje og eyja með Gorenje helluborði, innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur Samsung ísskápur sem getur fylgt við sölu. Í framhaldi er
stofan og gengt úr henni út á pall sem er afgirtur með skjólveggjum. Inn af stofu er opið rými, en samkvæmt teikningu er
gert ráð fyrir fimmta svefnherbergi hússins þar.Svo er
gangur eftir endilöngu húsinu og útidyr fyrir enda hans sem gæti verið sér inngangur fyrir auka íbúð ef hún væri stúkuð af.
Svefnherbergin eru öll ágætlega rúmgóð en bara kominn fataskápur í eitt þeirra,
hjónaherbergið. Inn af því er líka
sér baðherbergi með sturtu, upphengdu klósetti og nettri innréttingu.
Aðal baðherbergi hússins er flísalagt í hólf og gólf, sturta þar með glerþili, upphengt klósett, nett innrétting og pláss fyrir þvottavél, - þriðja baðherbergið með svipuðu sniði.
Vesturendi hússins en þannig gerður að þar er mjög einfalt að stúka af þriggja herbergja íbúð með sér inngangi, aðeins þarf að loka ganginum.
Seljandi hefur klárað lokaúttekt og greiðir skipulagsgjald.- Sjón er sögu ríkari. -Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson lögg. fasteignasali s. 896 9565, loftur@husfasteign.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald samkv. gjaldskrá lánasofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.