Silfursmári (íb. 210) 8, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 83,9
Stærð 105
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 802
Skráð 2.10.2022
Fjarlægt 4.10.2022
Byggingarár
mbl.is

Opið hús sunnudaginn 2. október frá 13:00 - 17:00 - Verið velkomin

LIND Fasteignasala og 201Smári kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir að Silfursmára 8, 201 Kópavogi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gólfhiti á baðherbergjum. Allt innlagnarkerfi er frá GIRA og mynddyrasími með GSM-tengingarmöguleika er í hverri íbúð.

Húsið er klædd með Cembrit (sementsklæðningu) og litaðri álklæðningu auk þess sem það eru ál-tré gluggar og er því húsið viðhaldslítið. Allir innveggir eru hlaðnir eða staðsteyptir. Grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu er uppsett í bílakjallara.

Íbúð 210: Er 104,6 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílgeymslu merkt B09 og 13,7 fm sérafnotareitur til suðurs. Íbúðin er 97,5 fm ásamt 7,1 fm geymslu. Afhending í mars 2023 eða fyrr.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins 201.is


BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
DIÐRIK STEFÁNSSON Í S: 647-8052 / DIDDI@FASTLIND.IS
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS


Innréttingar: Allar innréttingar í eldhúsum, baðherbergjum ásamt fataskápum í herbergjum og forstofum eru frá AXIS. Skápar í forstofu, herbergjum og baði eru hvítar. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni AEG. Íbúðum er skilað með Span helluborði,
blástursofni með burstaðri stáláferð. Gufugleypar eru í viftuskápum á veggjum eða lofthengdir eyjuháfar þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa og hvítu þrýstihnappi á vegg. Handlaug er hvít,
ofan á borðplötu með einnarhandar blöndunartæki frá Hansa. Sturtur eru með flísalögðu gólfi með
vatnshalla að aflöngu niðurfallsrist upp við vegg. Þær eru afmarkaðar með sturtu glervegg. Sturtutæki er
hitastýrt með sturtustöng og handsturtu. Hreinlætistæki eru frá Tengi.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á
byggingaframkvæmd stendur.
Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á
afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.
Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
DIÐRIK STEFÁNSSON Í S: 647-8052 / DIDDI@FASTLIND.IS
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22