Gissurargata 1, 113
Fjarlægð/Seld - Eignin var 19 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
356
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
|
Skráð |
1.10.2022 |
Fjarlægt |
21.10.2022 |
Byggingarár |
|
mbl.is |
|
** Byggingarlóð, púði og allar teikningar og undir glæsilegt einbýlishús með aukaíbúð í Úlfarsárdal **Sölvi Sævarsson lgf s. 618-0064 og Domusnova fasteignasala kynna í einkasölu: Byggingarlóð undir einbýlishús á frábærum stað í litlu hverfi við Reynisvatnsás í jaðri byggðar þar sem eingöngu eru sérbýli í hverfinu. Góð staðsetning í botni Úlfarsárdals þar sem örstutt er í góðar göngu- og hjólaleiðir í ósnortna náttúruna. Frábærar samþykktar teikningar af tæplega 360 fm húsi liggja fyrir, teiknaðar af Guðmundi Gunnlaugssyni arkitekt (archus) sem sýna gott skipulag af eintaklega fallegu húsi með aukaíbúð á jarðhæð hússins. Allar teikningar liggja fyrir. Búið er að jarðvegsskipta og koma fyrir púða og klárt í að hefja framkvæmdir að fengnu endurnýjuðu bygingarleyfi.
Teikningar sýna eftirfarandi:- Stórt alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu með mikilli lofthæð.
- Fjögur stór svefnherbergi.
- Hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi.
- Tvö góð baðherbergi.
- Aukaíbúð, tveggja herbergja með sér inngangi.
- Stór góður bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is
– eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.