Vatnsstígur 20-22, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 146 daga á skrá

Verð 94,9
Stærð 108
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 882
Skráð 30.9.2022
Fjarlægt 24.2.2023
Byggingarár 2015
mbl.is

Nýtt Heimili fasteignasala og leigumiðlun kynnir:

Virkilega vönduð og falleg íbúð á 1.hæð ásamt sér stæði í bílgeymslu við Vatnsstíg 20-22. Svalir í suð-vestur með útsýni til sjávar. Þvottahús innan íbúðar. Húsvörður er í húsinu.

Bókið skoðun á skrifstofu í síma 414-6600 eða netfang nyttheimili@nyttheimili.is

Smelltu hér til að fá söluyfirlit STRAX

Allar innréttingar í íbúðinni eru íslensk sérsmíði frá GKS úr fallegri silfur eik. Náttúrusteinn á borðplötum í eldhúsi og á baðherbergi. 
Á gólfum er lifandi eik með grófu yfirborði og flísar á gólfum baðherbergis og þvottahúss. Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Íbúð 15-0105 er 107,6 fm og lofthæð 2,70 m. Svalir eru 8,0 fm. Sér 10 fm geymsla í sameign og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Stæði í lokaðri bílageymslu staðsettri undir húsinu, stæðið er með möguleika á hleðslustöð.

Nánari lýsing: 

Íbúðin skiptist í forstofuhol með góðum fataskápum. Opin og björt stofa með útgengi á svalir til suð-vesturs og útsýni af svölum til sjávar.
Eldhús er með vönduðum Miele tækjum, spansuðuhelluborði, háfi yfir eldavélartanga, ofni, stálvaski undir borðplötu og blöndunartækjum. Lýsing í eldhúsi er í lofti og undir efri skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf í ljósum lit. Vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa og vaskur er undir borðplötu. Sér sturta og innbyggt baðkar úr postulíni.
Þvottahús er flísalagt, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og vaskskápur. Rúmgott svefnherbergi með rúmgóðum fataskáp.

Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur Skuggahverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Stutt er í alla þjónustu; verslanir, veitingastaði, skóla, heilsugæslu og afþreyingu af ýmsu tagi. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við leikhús, kvikmyndahús og tónlistarhús býður upp á einstaka möguleika. Fjölmörg kaffihús og fjölbreyttir veitingastaðir eru í næsta nágrenni og því nánast öruggt að allir finna eitthvað við sitt hæfi þegar kemur að mat og drykk. Frá Skuggahverfinu er stutt í margar helstu perlur miðborgarinnar; gömlu höfnina, tjörnina, Hljómskálagarðinn, Skólavörðuholtið og Austurvöll.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu í síma 414-6600 eða netfang nyttheimili@nyttheimili.is
 


Nýtt Heimili - Fasteignasala og leigumiðlun - Sími 414-6600 - Hamraborg 12 - 200 Kópavogur.

Ertu í söluhugleiðingum?
 Smelltu hér og pantaðu frítt sölumat. 

Líka á facebook - Smelltu hér / NyttHeimili. 


 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33