Bíldshöfði 16, 110
Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
1.087
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
|
Skráð |
30.9.2022 |
Fjarlægt |
7.10.2022 |
Byggingarár |
1985 |
mbl.is |
|
Stakfell kynnir í sölu: 1.086,80 skrifstofuhúsnæði á eftirsóttum stað í Reykjavík. Eignarhlutinn sem um ræðir er öll þriðja hæð og hálf fjórða hæð. Sameiginlegar hellulagðar svalir eru til suðurs á 4. hæðinni. Tveir inngangar eru inn í hús, en aðalinngangur er sameiginlegur á 2. hæð baka til við húsið. Sameignin er björt og snyrtileg. Næg bílastæði og góð aðkoma að húsinu. Í ný eignaskiptayfirlýsing liggur fyrir, þar sem eigninni er skipt á þrjú fastanúmer, sem seljandi fær og sér um að klára undirskriftir og þinglýsa.
Afhending við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@stakfell.is.Nánari lýsing:Þriðja hæð: Komið er inn á gang sem leiðir að alrými með móttöku og salerni en að öðru leyti er hæðin stúkuð upp í ca. 10 mismunandi stórar skrifstofur. Mikil og góð lofthæð í miðju rýmisins. Milliveggir eru léttir og allar breytingar eru auðveldar.
Fjórða hæð: Salerni eru sameiginleg fyrir alla hæðina og eru þau beint á móti stigapallinum. Gólfefni eru aðallega korkur. Öll gólfefni eru komin til ára sinna og þarfnast endurnýjunar. Milliveggir eru léttir og allar breytingar eru auðveldar.
*Seljandinn hefur ekki haft venjubundin afnot af húsnæðinu sem hefur staðið autt og er þekking hans á fasteigninni þar af leiðandi takmörkuð. Fasteignin er seld í því ástandi sem hún er og skorar seljandi á kaupanda að skoða fasteignina gaumgæfilega fyrir kaup með atbeina fagaðila.
Kaupverð tekur mið af ástandi eignarinnar sem selst í því ástandi sem hún var í við nákvæma skoðun kaupanda og hann sættir sig við að öllu leyti.Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@stakfell.is.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.500 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.