Vesturbraut 10, 230

Fjarlægð/Seld - Eignin var 251 dag á skrá

Verð 219,0
Stærð 680
Tegund Atv.
Verð per fm 322
Skráð 22.9.2022
Fjarlægt 1.6.2023
Byggingarár 1956
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Einstakt tækifæri – mikið endurnýjað skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði fullbúið fyrir rekstur bílaleigu. Eignin er tvær byggingar, skráðar samkvæmt fasteignamati 573,3 fermetrar og 106,8 fermetrar, samtals 680,1 fermetrar á 4170 fermetra lóð. Hægt er að kaupa allan búnað sem er í húsinu með því og fá þar með húsnæði fullbúið til reksturs bílaleigu. Frábær staðsetning.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina. Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.

Í stærri byggingunni er móttaka og afgreiðslusalur ásamt annarri aðstöðu fyrir viðskiptavini, skrifstofu- og tækniaðstaða fyrir rekstur starfseminnar, stórt verkstæði með bílalyftum og tilheyrandi búnaði, vönduð þvottaaðstaða og geymslupláss á millilofti sem ekki er skráð í fermetratölu eignarinnar. Gert er ráð fyrir gegnumakstri – bílar koma inn í þvottaaðstöðuna, áfram inn í húsið eftir þvott til frekara viðhalds og umhirðu, og út um aðrar innkeyrsludyr út á lóð eignarinnar, þar sem er gott pláss fyrir fjölmarga bíla eða önnur tæki. Girðing er á lóðarmörkum að hluta.
Minna húsið á lóðinni er um 100 fermetrar, með stórum innkeyrsludyrum og tveimur verkstæðislyftum. Fín viðgerðaraðstaða er í húsinu.
Lóðin er malbikuð, góð aðkoma og gott pláss.
Einstakt tækifæri til að eignast fullbúna aðstöðu og komast beint í rekstur.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 |www.eignamidlun.is

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25