Vallarbraut 12, 170
Fjarlægð/Seld - Eignin var 35 daga á skrá
Verð |
112,0
|
Stærð |
205
|
Tegund |
Hæðir |
Verð per fm |
546
|
Skráð |
22.9.2022 |
Fjarlægt |
28.10.2022 |
Byggingarár |
1964 |
mbl.is |
|
Kristín Einars. lgf. og DOMUSNOVA kynna: Vel skipulagða og skemmtilega efri sérhæð við Vallarbraut á Seltjarnarnesi,
með 4-5 svefnherbergjum, stórum stofum og bílskúr.
Samkv. FMR skiptist eignin í 161,5 fm íbúð, garðskála 14,5 fm, bílskúr 29,1 fm. Samtals 205,1fm. Komið er inn
í forstofu með teppalögðum
steyptum stiga á milli hæða og smíðajárns handriði.
Á palli á efri hæð í forstofu er góður fataskápur og
gestasnyrting með flísar á veggjum og gólfi.
Komið er inn í mjög
rúmgott og bjart parketlagt hol. Fataskápur er í holinu.
Úr holinu er gengið inn í
stórt rými með glugga sem snýr inn í garðskálann. Auðvelt að breyta í svefnherbergi.Á milli hols og stofurýmis er falleg eikarhurð með frönskum gluggum.Stofurnar eru L laga, rúmgóðar og bjartar með sjávarútsýni. Stór gluggi er í borðstofu
Útgengi er úr borðstofu inn í eldhús.Úr stofunni er jafnframt gengið inn í garðskála með náttúruflísum á gólfi, þaðan er gengið út á svalir.Eldhúsið er rúmgott og bjart, mikið skápapláss og góður borðkrókur.
Tveir stórir gluggar er í eldhúsinu. Hvít innrétting og gott borðpláss. Flísalagt er á milli skápa. Lagt er fyrir uppþvottavél. Korkur á gólfi.
Á svefnherbergisgangi er
hjónaherbergi með stórum fataskápum. Marmaraflísar á gólfi.
Á teikningu eru
þrjú barnaherbergi, en tvö hafa verið sameinuð í eitt, auðvelt að gera breytingu á því aftur til baka
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Tvöfaldur vaskur. Baðkar og sturta. Gluggi með opnanlegu fagi.
Rúmgott
þvottahús með glugga.
Eikarparket á flestum gólfflötum.
Geymsla í öðrum enda svefnherbergisgangs.
Bílskúrinn er 23 fm og geymsla inn af bílskúr 6,1 fm. Nýleg bílskúrshurð. Hiti í stétt í innkeyrslu.Í garðinum er sameiginlegur
geymsluskúr fyrir garðáhöld.
*Þakið á húsinu var endurnýjað fyrir ca. 5 árum.
*Raflagnir á hæðinni endurnýjaðar 2019.Nánari upplýsingar veita:
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali/s: 894 3003 / Kristin@domusnova.isHaukur Halldórsson löggiltur fasteignasali / s.6959990 / haukur@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.