Nesvegur 41, 107

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 55,9
Stærð 76
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 733
Skráð 22.9.2022
Fjarlægt 30.9.2022
Byggingarár 1989
mbl.is

*SÉR STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU OG SAMEIGINLEG STÆÐI VIÐ HÚSIÐ*
*FYRIRHUGAÐ FASTEIGNAMAT 2023 ER KR. 58.100.000*
*HÚSIÐ VAR NÝLEGA VIÐGERT OG MÁLAÐ*
*NÝLEG ELDHÚSINNRÉTTING*

Hús fasteignasala kynnir rúmgóða, opna og bjarta 2ja herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara, ásamt stæði í bílageymslu.  Eignin er samtals 76,3 fm., auk stæðis í bílageymslu.  Íbúðin er á tveimur pöllum og lítið niðurgrafin.  Nýleg eldhúsinnrétting.  Húsið var byggt árið 1989.  Frábær staðsetning í Vesturbænum.  Stutt í gönguleiðir við sjávarsíðuna.  Í næsta nágrenni er  leikskóli, grunnskóli, háskóli, íþróttafélag, verslanir, Vesturbæjarlaug og önnur þjónusta.
 
Nýlega er lokið töluverðri viðgerð/endurnýjun á húsinu, sem seljandi greiðir og var m.a. eftirfarandi viðgert og endurnýjað, að sögn seljenda:  Húsið viðgert og málað að utan, nýtt plexigler í þakglugga og sett var nýtt teppi á stigahús.  Einnig var járn á þaki endurnýjað fyrir nokkrum árum, að sögn seljenda.
 
Í íbúð hefur eftirfarandi verið nýlega endurnýjað:  Eldhúsinnrétting endurnýjuð seinnipart árs 2021 og settar nýjar hvítar plötur í loft stofu, eldhúss og anddyris.

Eignin skiptist í anddyri, stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.  Sérgeymsla og stæði í bílageymslu er á sömu hæð.
 
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@husfasteign.is
Viltu frítt verðmat fyrir sölu?  Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?

Nánari lýsing:  Anddyri
er með fataskáp.  Björt stofa er á neðri palli, með góðri lofthæð og opin inn í eldhús.  Í eldhúsi er nýleg hvít innrétting, keramikhellur með ofni undir borðplötu, tengi fyrir uppþvottavél og opið inn í stofu og anddyri.  Í baðherbergi er hvít innrétting, flísalögð sturta, handklæðaofn, flísar á vegg við sturtu og vask og tengi fyrir þvottavél.  Svefnherbergi er með fataskáp.  Plastparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar.  Ljósar plötur eru í lofti íbúðar.  Sérgeymsla með hillum og stæði í bílageymslu, er á sömu hæð.  Sameiginleg hjólageymslaStæði í bílageymslu.
 
Annað:  Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúð 71,7 fm. og geymsla 4,6 fm., eða samtals 76,3 fm., auk stæðis í bílageymslu.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.  Nánari   upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15