Snæfoksstaðir sumarhús, 805
Fjarlægð/Seld - Eignin var 159 daga á skrá
Verð |
34,0
|
Stærð |
50
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
679
|
Skráð |
22.9.2022 |
Fjarlægt |
1.3.2023 |
Byggingarár |
1989 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun kynnir:
Huggulegt sumarhús á stórri gróinni lóð í landi Snæfoksstaða í Vaðnesi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Stutt á golfvöllinn í Öndverðarnesi. **Smelltu hér til að sækja söluyfirlit**Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Viðbygging stendur við húsið þar sem er heitur pottur og sturta. Auk þess stendur geymsluskúr á lóðinni sem er óeinangraður en með rafmagni.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð samtals 50,1 fm en sólskáli sem byggður hefur verið við húsið er ekki inni í fermetratölu. Auk þess er geymsluskúr á lóð sem ekki er inni í fermetratölu. Húsið stendur á 9.600 fm leigulóð úr landi Snæfoksstaða.
Nánari lýsing eignar:
Eldhús er með snyrtilegri hvítri U-laga innréttingu og efri skápum.
Stofa er með aukinni lofthæð og stórum gluggum og útgengi á stóran sólpall. Áður var kamína í stofu en hún hefur verið fjarlægð.
Herbergi 1 er rúmgott hornherbergi inn af anddyri. Fataskápar í herberginu.
Herbergi 2 er inn af eldhúsi.
Herbergi 3 er inn úr stofu, áður var koja í þessu herbergi. Geymsluloft.
Baðherbergi með upphengdu salerni, sturtuklefa og snyrtilegri hvítri innréttingu.
Anddyri með fataskápum.
Viðbygging stendur við húsið þar sem er heitur pottur, sturtuklefi og setuaðstaða. Stór rennihurð út á pall og inngönguhurð.
Útigeymsluskápar á sólpallinum.
Geymsluskúr á lóð sem er óeinangraður en með rafmagni.
Eignin er kynt með ofnakerfi, hitaveita.
Hverfið er lokað með hliði sem er aðgangsstýrt með síma.
Fasteignamat 2023 = 26.600.000 kr.
Nánari upplýsingar veitir:
Kári Sighvatsson lögfr. og löggiltur fasteignasali í síma
899-8815, kari@eignamidlun.is
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kraupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími
588 9090 | www.eignamidlun.is | Opið mán-fimmtud frá kl. 9 - 17 og föstud 9 - 16.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook