Verð | 12,9 |
Stærð | |
Tegund | Annað |
Verð per fm | |
Skráð | 3.9.2022 |
Fjarlægt | 16.9.2022 |
Byggingarár | |
mbl.is |
Sumarhúsalóð í Heklubyggð, stór eignalóð 14.200fm fyrir allt að 4 byggingar, 300fm (2 bústaði, gestahús, bílskúr). Einstök staðsetning og útsýni. 90% lán frá IMIROX á 0,9% óverðtryggðum vöxtum.
Krókahraun 4 er einstaklega vel staðsett og stór sumarhúsalóð nálægt Ytri Rangá á frístundasvæðinu Heklubyggð í landi Svínhaga, Rangárþingi Ytra. Eignalóð sem er 14.200fm að stærð. Heimild fyrir 2 bústaði með samtals 200fm byggingamagn, auk bílskúrs og gestahúss. Sjá nánari útlistun í deiliskipulagi. Búið er að leggja veg að lóðinni. Vatn og rafmagn við lóðarmörk. Glæsilegt útsýni yfir svæðið, að Heklu, Búrfelli, og upp hálendið. Einstakt útsýni upp Ytri Rangá, þar sem byggingareiturinn stendur á hæð fyrir neðan ánna, sem mun skapa einstaka sýn úr stofugluggum bústaðar. Akstur frá Reykjavík tekur um 1,5 klst. Flugvöllurinn á Haukadalsmel er við svæðið.
Landið er þátttakandi í verkefninu Hekluskógar, og fær árlega úthlutað birkiplöntum til gróðursetningar. Ennfremur hafa aspir og víðitegundir verið gróðursettar á lóðinni.
Sumarhúsafélag er á svæðinu um samtals 102 lóðir og sér um sameiginlega hagsmuni. Árgjald 2021 var 20.000, en árgjald 2022 verður ákveðið á aðalfundi í September.
Fasteignanúmer: F234-2254. Landeignanúmer: L198057. Fasteignamat 2022: kr. 2.520.000.
90% lán á 0,9% vöxtum: IMIROX ehf. býður lögaðilum 90% lán á þessa eign - 0,9% fastir óverðtryggðir ársvextir á vaxtagreiðslulán í evrum. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is
Hægt er að greiða fyrir eignina að hluta eða í heild með ISK, EUR eða Bitcoin.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993.
Þessi eign er í beinni sölu, þ.e. án milligönguaðila. Titaya ehf. er fasteignafélag og selur eingöngu eigin eignir.