Fagrahlíð lóð, 861

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 220,0
Stærð
Tegund Annað
Verð per fm
Skráð 14.8.2022
Fjarlægt 15.8.2022
Byggingarár
mbl.is


Fagratún við Fögruhlíð, Fljótshlíð - nýtt 39,2 ha svæði í skipulagsvinnu undir frístundabyggð með allt að 60-80 heilsárshúsum. Tilkomumikið útsýni. 90% fjármögnun á jörð & framkvæmdalán á byggingar.

Fagratún er c.a. 39,2 ha. landsvæði sem verið er að skipuleggja sem frístundabyggð. Í dag heitir landið Fagrahlíð lóð (F2194306, L164090), en nafninu verður breytt í Fagratún. Í dag eru landamerki jarðarinnar önnur, en verið er að vinna að breytingu lóðamarka, þ.a. allt landsvæði sem í dag tilheyrir jörðinni Fagrahlíð (F2193602, L164004) og liggur neðan Þjóðvegar, mun framvegis tilheyra Fagratúni.

 

Fljótshlíðin er rómuð sumarhúsaparadís vegna veðursældar, kyrrðar, náttúru og útsýnis. Þaðan sést til Vestmannaeyja, yfir Eyjafjallajökul og inn að Kötlu. 

 

Fagratún liggur neðan Þjóðvegar, um 7 km (6 mín. akstur) frá Hvolsvelli, um 102 km (80 mínútna akstur) frá Norðlingaholti, Reykjavík.  Landið inniheldur ræktuð tún og gróið land. Tilkomumikið útsýni. Falleg á rennur í gegnum landið. Stutt er í þjónustu og sund á Hvolsvelli. Gistiheimilið Fagrahlíð er í göngufæri. Þá eru 4 km í afþreyingu og þjónustu á Hellishólum. Örstutt (11 km) í næsta flugvöll, Múlakot

 

Skipulagsdrög gera ráð fyrir 60-80 heilsárshúsum, auk sameignar. Landið verður selt sem ein heild, eftir að landamerkjum hefur verið breytt, nafni breytt, og deiliskipulag sem frístundabyggð samþykkt. Nýr eigandi mun þá geta hafist handa við lokaskipulag svæðisins og hafið framkvæmdir. 

 

IMIROX ehf. býður lögaðilum allt að 90% lán á þessa eign, auk þess sem IMIROX hefur áhuga á að lána til framkvæmda vegna uppbyggingar svæðisins. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.

 

Hægt er að greiða fyrir eignina að hluta eða í heild með ISK, EUR eða Bitcoin.

 

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993.
 

Þessi eign er í beinni sölu, þ.e. án milligönguaðila. Titaya ehf. er fasteignafélag og selur eingöngu eigin eignir.

            

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Skiptir milljón þig máli? Fáðu tilboð í söluþóknunina á www.e-fasteignir.is
Hugbúnaðurinn sendir fyrirspurn á alla fasteignasala á Íslandi.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8