Söluauglýsing: 886639
Tryggvagata 13
101 Reykjavík
Verð
62.500.000
Stærð
99m²
Fermetraverð
631.313 kr. / m²
Tegund
Fjölbýli
- Dagsetning skráningar: 08.11.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Fasteignamat: 61.600.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 21.11.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Daði Þór Lgf. og Domusnova kynna: Glæsilega og rúmgóða 2ja herbergja íbúð með suðursvölum í hjarta miðbæjarins
Eldhús og stofa/borðstofa í opnu rými. Stórt svefnherbergi, með innréttuðu fataherbergi og sér baðherbergi.
Gestasnyrting og þvottaherbergi. Samkv. FMR. skiptist eignin í 98,3fm íbúð og 1,3fm geymslu. Samtals 99,6fm.
Í eldhúsinu fylgir ísskápur, helluborð, bakarofn og uppþvottavél.
Gólfhiti er í íbúðinni og í baðherberginu er krómaður handklæðaofn.
Innfelld LED lýsing í allri íbúðinni.
Gólfefni er vandað krosslímt viðarparket.
Sérsmíðaðar hurðir frá Víkurás.
Tölvustýrt ljósa- og hitakerfi.
Þetta er einstök eign þar sem byggingin og innréttingar eru 1. flokks og hugsað hefur verið
fyrir öllu atriðum bæði stórum og smáum.
* Þrjú stæði fyrir deilibíla
* Mikið útsýni yfir höfnina og yfir sjóinn
* Glæsilegar innréttingar
* Einstaklega fallegt anddyri, marmari á gólfum og veggir skreyttir með listaverkum eftir Leif Breiðfjörð.
* Stigahús og gangar lagðir með hljóðdempandi undirlagi og teppi.
* Myndir teknar úr sýningaríbúð
* Þjónustumiðstöðin Þorrasel fyrir eldri borgara handan við hornið.
Nánari upplýsingar veita:
Daði Þór Jónsson löggiltur fasteignasali, í síma 695 6037 eða [email protected]
Skilalýsing fyrir nýjar íbúðir að Tryggvagötu 13.
Lýsingu þessari er ekki ætlað að vera tæmandi um einstök atriði.
Frágangur utanhúss:
Útveggir eru staðsteyptir og einangraðir að innan. Húsið verður með sjónsteypuáferð að utan og er steypa varin með þýskum gæða efnum. Notaður er lítt vatnsdrægur norskur sandur í steypu útveggja til að draga úr vatnsdrægni útveggja.
Þök eru með nettum halla að þakniðurföllum, lögð rakavarnarlagi, einangruð og klædd með öndunarþakdúk af vandaðri gerð.
Svalir á 2. til 5. hæð eru steyptar og svalagólf slípuð og vatnsvarin. Svalahandrið eru úr hertu gleri og led lýsing í handlistum sem lýsir upp glerhandrið að ofan. Gólf þaksvala á 6. hæð verða klædd viði, þar verður handrið úr hertu gleri og viðarveggur sem aðskilur milli svala, hæð veggs að sunnaverðu 1.7 m og að norðan 1.2 m.
Gluggar, útihurðir og gler eru af vandaðri gerð til að tryggja sem minnst viðhald. Gluggar á jarðhæð eru álkerfisgluggar. Gluggar á efri hæðum eru timbur/ál-gluggar. Að utan er ál í gráum lit og breytilegir litir í lóðréttum böndum við opnanleg fög, heitir litir á suðurhlið og kaldir á norðurhlið. Gler er af gerðinni Klima Plus, samlímt/hert öryggisgler og rúður mis þykkar til hljóðdempunar. Ábyrgð framleiðanda á gluggum og gleri er samkvæmt skilmálum Glerborgar. Gluggar í íbúðum á 2.-6. hæð eru gólfsíðir með opnanlegum fögum og hljóðdempandi loftunarristum. Allt gler gefur minnst 41 dB hljóðdempun.
Lóð er 2 m breið sunnan húss og tengist Borgartorgi og er hvort tveggja hannað af landslagsarkitekt. Á lóðinni er snjóbræðsla, hellur og listaverk og á Borgartorgi er snjóbræðsla, hellur, gróður og bekkur.
Frágangur íbúða innanhúss:
Íbúðir eru með gólfsíðum timbur/ál gluggum, gluggar eru málaðir hvítir að innan og klæddir gráu áli að utan. Loftunarristar gefa 48 dB hljóðdempun í opinni stöðu og skulu vera opnar til að koma í veg fyrir undirþrýsting í íbúðum. Á öllum íbúðum eru svalir.
Gólf. Íbúðir eru afhentar fullbúnar með gólfefnum til að tryggja að alls staðar verði frágangur í samræmi við hljóðhönnun. Á votrýmum eru vandaðar flísar á gólfum og undir þeim er fullkomin rakavörn (dúkur í sturtum, kvoða annars staðar og kantborðar í öllum hornum). Á öðrum rýmum er vandað krosslímt viðarparket, nema í íbúðum 0202 og 0203, þar eru flísar á öllum gólfum.
Veggir. Útveggir eru einangraðir að innan, múrhúðaðir, sparslaðir með rakaheldu gifsi, grunnmálaðir og málaðir með rakaheldri málningu. Léttir milliveggir eru hlaðnir úr Ytong steinum og lagnaleiðir eru klæddar með rakaheldu gifsi. Á flísalögðum veggjum á böðum er gengið frá vönduðu undirlagi til þéttingar (dúkur í sturtum, kvoða annars staðar og kantborðar í hornum). Flísar og fúga eru af vandaðri gerð. Málaðir veggir í votrýmum eru sparslaðir með rakaheldu sparsli og grunnaðir og málaðir, allt efni er rakahelt. Í almennum rýmum eru veggir og loft sandsparslað, grunnað og málað með hálfmattri málningu. Öll málning er af bestu fáanlegum gæðum frá Málningu ehf til að tryggja létt þrif. Allir veggir eru málaðir hvítir.
Loft eru slípuð, sandspörsluð, grunnuð og máluð.
Innihurðir. Hljóðdempandi hurðir frá íbúðum að göngum eru lakkaðar gráar, hljóðdempun er 36 dB, brunavörn EI 30-CS og hurðapumpa er felld inn í hurð að ofan. Hurðir og rennihurðir innan íbúða eru sprautulakkaðar í hvítum lit. Allar hurðir í íbúðum og á göngum eru sérsmíðaðar hjá Víkurási og eru hærri en venja er.
Innréttingar:
Í öllum innréttingum er vandað innvols og hágæða lamir og brautir. Innréttingar eru ýmist sprautulakkaðar eða spónlagaðar og ýmist með gripraufum eða nettum höldum.
Eldhúsinnréttingar eru af vandaðri gerð. Undir efri skápum er led lýsing. Innréttingar eru breytilegar, ýmist hvítar mattar, hvítar háglans eða spónlagðar. Víðast er ífræst grip, í viðarinnréttingum er ífræst grip í gegnheilan eikarlista, en fáeinar innréttingar eru með nettum höldum. Borðplötur eru vandaðar úr upplímdum gegnheilum harðviði eða steinborðplötur. Vaskar og helluborð eru felld niður í borðplötur. Öll rafmagnstæki eru frá AEG, af vandaðri gerð. Kæliskápar og uppþvottavélar eru hljóðlát og til innbyggingar, kæliskápar eru með sjálfvirkri afhrímingu í kæli og frysti. Í eldhúsum eru sjálfhreinsandi ofnar og spanhelluborð og háfar með síu yfir helluborðum.
Öll blöndunartæki eru í hljóðflokki 2, með einnar handar stjórnun.
Fataskápar eru í forstofum og herbergjum þar sem við á. Útlit og áferð er almennt sama og í eldhúsi í viðkomandi íbúð. Í flestum íbúðum eru fataherbergi og þar eru opnir skápar með fellislám, föstum slám, skúffum og hillum af vandaðri gerð.
Bað- og þvottahússinnréttingar verða ýmist hvítar háglans, hvítar mattar eða spónlagðar, með ífræstu gripi eða málmgripi. Borðplötur verða breytilegar í samræmi við eldhúsborð og hágæða handlaugar á öllum baðherbergjum. Í sumum íbúðum er gert ráð fyrir sambyggðri þvottavél og þurrkara undir vaskaborði í baðherbergi, í öðrum verður þvottaaðstaða fyrir þvottavél og þurrkara hlið við hlið í baðherbergi og í nokkrum íbúðum er þvottaherbergi. Í öllum baðherbergjum eru krómaðir handklæðaofnar. Í flestum íbúðum er sturta með glervegg og í fáeinum íbúðum er baðkar. Blöndunartæki eru innbyggð og sturta tekin niður úr lofti eða út úr vegg.
Hreinlætistæki eru í hæsta gæðaflokki frá Laufen í Sviss, með þríbrenndum glerjungi sem er léttur í þrifum. Öll blöndunartæki eru þýsk gæðavara frá Kludi. Salerni eru með innbyggðum kassa og hæglokandi setu.
Geymslur eru í íbúðum, fullinnréttaðar sem fatageymslur. Auk þess fylgir öllum íbúðum geymsla eða geymsluskápur í kjallara sem er án innréttinga. Rafmagnstengill og loftljós er í hverri kjallarageymslu.
Tæknilegar lausnir:
Hitakerfi: Gólfhiti er í öllum íbúðum og í baðherbergjum eru handklæðaofnar.
Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir eru fullfrágengnar í samræmi við lagnateikningar. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Rafmagns- og veikstraumslagnir eru fullfrágengnar í samræmi við teikningar rafhönnuðar. Í húsinu er hágæðar rofa og tenglaefni frá ABB – Future Linear
Lýsing. Innfelld LED lýsing er í íbúðum og sameign. Í íbúðum er óbein LED lýsing á baðherbergjum og öll innbyggð loftljós fylgja. Útilýsing er innfelld LED ljósgjafar og er sérhönnuð lýsing í handriðum á svölum.
Ljósa og hitastýring í íbúðum er frá ABB, free@home (snjalllausn) stýrir hita og dimmar ljósin. Það er stýring fyrir nútúmaheimilið, þar sem hægt er að stýra heimilinu með rofum eða snjalltæki. Dimmar og töflubúnaður er samrýmd lausn frá ABB og í öllum íbúðum er ABB Welcome myndavéladyrasími.
Í húsinu verður lyklalaust aðgengi.
Búnaður. Öllum íbúðum fylgir reykskynjari tengdur brunakerfi og slökkvitæki.
Frágangur sameignar:
Anddyri er stórt og þar er rými fyrir sófa og samveru. Úr anddyri er innangengt í tvo stigaganga. Gólf í anddyri og á göngum jarðhæðar er klætt marmara sem er lagður á hljóðdúk. Í anddyri eru listaverk eftir Leif Breiðfjörð. Aðalinngangur er að sunnan frá Borgartorgi sem er hellulagt og þar er listaverk, bekkur og tré. Að norðan er inngangur frá Geirsgötu í hjólageymslu fyrir fáein hjól/vagna og þar eru póstkassar. Þar verður ræstivaskur vegna þrifa sameignar. Hliðarveggir í anddyri eru sjónsteypuveggir með kristöllum.
Hurðir í sameign. Útihurðir eru fullfrágengnar úr áli og aðalinngangur frá Tryggvagötu er um rennihurð. Allar hurðir í sameign verða sérsmíðaðar og lakkaðar í gráum lit. Í anddyri eru glerhurðir og gluggi verður í hurðum úr stigahúsi og inn á ganga. Í húsinu verður lyklalaust aðgengi.
Stigahús og gangar verða lagðir hljóðdempandi undirlagi og teppi.
Í kjallara verður hjóla- og vagnageymsla, hleðslusvæði fyrir rafskutlur, bílastæði fyrir fáeinar íbúðir og fáein deilisbílastæði. Gólf, veggir og loft verða að mestu leyti ómeðhöndluð sjónsteypa. Kjallari er hitaður með ofnum. Í kjallara eru geymslur eða geymsluskápar fyrir allar íbúðir.
Sorpgeymsla er á jarðhæð með inngangi frá Geirsgötu. Útveggur er einangraður, múrhúðaður og málaður, en aðrir veggir og loft með sjónsteypuáferð.
Þar er gert ráð fyrir ýtarlegri flokkun sorps vegna endurvinnslu.
Í sameign er lýsing fullkláruð.
Lyftur eru af vandaðri gerð frá Kone, mjög hljóðlátar og búnar besta fáanlega dempunarbúnaði. Þær
eru með hækkaðri lofthæð til að auðvelda flutninga.
Helstu hönnuðir hússins:
Aðalhönnuður og samræmingarhönnuður, Hús og skipulag, Hildigunnur Haraldsdóttir arkitekt faí.
Sérhönnuðir burðarþols og lagna, Verkfræðistofa Þráinn og Benedikt.
Sérhönnuður rafmagns og veikstraums, Helgi Eiríksson og sérhönnnun lýsingar, Lúmex ehf.
Byggingaraðili:
T13 ehf.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun
og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. Stimilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.000,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 886639
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 62.500.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 61.600.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 627.510
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 99
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 08.11.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 21.11.2019
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 08.11.2019
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Gata:
Heiti götunnar þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Tryggvagata 13
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Heildarfjöldi skoðana: 0
Heildarfjöldi skoðana á eigninni á vefsíðu. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2017
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 2
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 1
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 1
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 2
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr:
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur:
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd:
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð:
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg:
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Tryggvagata
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 13
Húsnúmer eignarinnar.