Söluauglýsing: 1091810

Silfursmári 4 ÍB.701

201 Kópavogur

Verð

109.900.000

Stærð

118

Fermetraverð

931.356 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli
hero

Staðsetning

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

**TVÖ BÍLASTÆÐI // AUKIN LOFTHÆÐ**
LIND Fasteignasala og 201Smári kynna með stolti:
Nýjar og glæsilegar íbúðir að Silfursmára 4, 201 Kópavogi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gólfhiti á baðherbergjum. Allt innlagnarkerfi er frá GIRA og mynddyrasími með GSM-tengingarmöguleika er í hverri íbúð.

Húsið er klædd með Cembrit (sementsklæðningu) og litaðri álklæðningu auk þess sem það eru ál-tré gluggar og er því húsið viðhaldslítið. Allir innveggir eru hlaðnir eða staðsteyptir. Grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu er uppsett í bílakjallara.

Íbúð 701: Er 118,1 fm þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með 15,8 fm svölum til suðurs. Aukin lofthæð er í íbúðinni og samlímdur steinn er á borðum. Eigninni fylgir tvö sérmerkt bílastæði í bílgeymslu merkt D27 og D28. Íbúðin er 106,2 fm ásamt 11,9 fm geymslu. Afhending í mars 2023 eða fyrr.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins 201.is

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
DIÐRIK STEFÁNSSON Í S: 647-8052 / [email protected]
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / [email protected]


Innréttingar: Allar innréttingar í eldhúsum, baðherbergjum ásamt fataskápum í herbergjum og forstofum eru frá AXIS. Skápar í forstofu, herbergjum og baði eru hvítar. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni AEG. Íbúðum er skilað með Span helluborði,
blástursofni með burstaðri stáláferð. Gufugleypar eru í viftuskápum á veggjum eða lofthengdir eyjuháfar þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa og hvítu þrýstihnappi á vegg. Handlaug er hvít,
ofan á borðplötu með einnarhandar blöndunartæki frá Hansa. Sturtur eru með flísalögðu gólfi með
vatnshalla að aflöngu niðurfallsrist upp við vegg. Þær eru afmarkaðar með sturtu glervegg. Sturtutæki er
hitastýrt með sturtustöng og handsturtu. Hreinlætistæki eru frá Tengi.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á
byggingaframkvæmd stendur.
Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á
afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.
Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
DIÐRIK STEFÁNSSON Í S: 647-8052 / [email protected]
KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / [email protected]

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

ÁbendingarHafa samband