Söluauglýsing: 1264358

Lyngás 1f íbúð 102

210 Garðabær

Verð

79.900.000

Stærð

99.8

Fermetraverð

800.601 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli
hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 6 daga.

Staðsetning

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Eignamiðlun kynnir:

Einstaklega falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð, með sérinngangi og sér stæði í bílageymslu við Lyngás 1 F í Garðabæ. Eignin er skráð alls  99,8 fm. Flatarmál íbúðarrýmis er 90,1 fm og flatarmál geymslu er 9,7 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og sér geymslu í sameign. Stór séreignarflötur í vestur. 
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir í síma 861-1197 eða [email protected].

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur. 
Eldhús: Rúmgott með fallegum ljósum innréttingum og tengi fyrir uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum. Harðparket á gólfi. Útgengt út á séreignarflöt til vesturs. 
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi. Öll með góðum skápum. Harðparket á gófi.
Baðherbergi: Rúmgott með góðum innréttingum, sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni og þvottaaðstöðu. 
Séreignarflötur: Stór afgirtur pallur til vesturs.
Sérmerkt stæði er í lokaðri bílageymslu undir húsinu. 

Falleg fjölskylduvæn íbúð sem vert er að skoða. Stutt í alla helstu þjónustu, meðal annars verslanir, skóla, leikskóla og sundlaug.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

ÁbendingarHafa samband