Söluauglýsing: 1139700

Jöfursbás 7A íb 204

112 Reykjavík

Verð

76.900.000

Stærð

102.2

Fermetraverð

752.446 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli
hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 10 daga.

Staðsetning

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

***DOMUSNOVA KYNNIR * ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ***AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING***SÝNUM SAMDÆGURS - PANTIÐ SKOÐUN Á [email protected] ***
!!!SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR TIL LOFTS, AUKIN LOFTHÆÐ, SUÐURSVALIR MEÐ GLERLOKUN, GLÆSILEG SAMEIGN!!!
Jöfursbás 7a, Reykjavík - íbúð 0204.  3ja-4ra herbergja horníbúð íbúð 102,2fm. á annarri hæð, þar af geymsla 8,1fm. (merkt 0001) og bílastæði merkt B0002 í lokuðum bílakjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með svefnherbergi á sérgangi.  Suðursvalir út frá stofu. 
Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm.


Íbúðirnar í húsinu eru mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 51 fm-138 fm. Bílastæði fylgir mörgum íbúðum og næg stæði fyrir utan hús.
Nánari upplýsingar á: https://gufunesid.is/

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Lýsing íbúðar:
Forstofa 
rúmgóð með innbyggðum fataskáp 
Eldhús rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu frá VOKE-lll  með góðu skápaplássi.  Innbyggð vönduð tæki.  Efri skápar ná til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.  Opið frá eldhúsi inn í borðstofu.
Borðstofa semtengd stofu næst eldhúsi og út frá henni er gólfsíður gluggi með útsýni til sjávar og hurð með útgengi á svalir til vesturs.  
Stofa með gólfsíðum glugga og útgengi suðursvalir með frágenginni svalalokun.
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein frá Technistone  
Hjónaherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Svefnherbergi # 2 er rúmgott með góðum fataskáp
Svefnherbergi # 3 er er mögulegt að setja innaf stofu
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 


Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða.  Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led, Veggofn.  Í íbúðum þar sem er eyja eru viftur af gerðinni AEG Airvorce-eyjuháfur Luna, hvítur.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe. 
Íbúðirnar afhendast með vönduðu harðparketi á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON. 
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING: Fyrstu búðir eru til afhendingar í mars 2023.

Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Kristín Einarsdóttir lgfs., s. 894-3003 eða [email protected]
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða [email protected]
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs.,  s. 856-3566 eða [email protected]
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891 8660 eða [email protected]
Vera Sigurðasrdóttir lgfs., s. 866-1110 eða [email protected]
Aðalsteinn Bjarnason lgfs., s. 773-3532 eða  [email protected]
Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgfs., s. 665-8909 eða [email protected]
Margrét Rós Einarsdóttir., aðstm lgfs., s 856-5858 eða [email protected]

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3%

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

ÁbendingarHafa samband