Söluauglýsing: 1050202

Holtsvegur 55

210 Garðabær

Verð

96.900.000

Stærð

129

Fermetraverð

751.163 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli
hero

Staðsetning

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

***SÝNUM DAGLEGA***Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegar nýjar fullbúnar íbúðir við Holtsveg 55 í Garðabæ. Um er að ræða  17 íbúða lyftuhús með 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðum. Fjórum íbúðum fylgir bílskúr og 5 íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Mjög fallegt hús klætt að utan með flísum og með stórum svölum með glerhandriði og eða veröndum á jarðhæð. Frábært útsýni og göngufæri í skóla, leikskóla og fallega náttúru.

Íbúð 301 er 5 herbergja og skráð 129,2fm ásamt 14,5fm suðaustursvölum. Íbúð 301 skiptist í forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 4 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaðastöðu og geymslu í sameign.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar með gólfefnum. Áætluð nóvember 2022.  Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hafdís sölustjóri [email protected] GSM: 820-2222 og/eða aðrir fasteignasalar hjá Fasteignasölunni TORG, S: 520-9595 eða [email protected]

Nánari lýsing: Um er að ræða nýbyggingu við Holtsveg 55 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum og hurðum frá Parka og harðparketi frágengið á íbúðargólf einnig frá Parka en á votrýmum verða flísar.  Rúmgóðar svalir með glerhandriði eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð. Húsið er hitað með ofnalögnum nema íbúðir á efstuhæð, þar er gólfhiti með anydrít ásteypulagi og lýsing innfelld á efstuhæð.
Raflagnir eru lagðar og skilað með perustæði í öllum rýmum nema á baði og eldhúsi þar er loftljós.
Heimilistæki: Eldavél, háfur og ofn er frá AEG.  Hreinlætistæki: Eru frá Tengi.
Gólf á bað og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Parka.
Á baðherbergi verður sturta, flísalagður sturtubotn og með sturtuhlið úr gleri þar sem við á. Blöndunartæki eru utanáliggjandi og salerni er upphengt. Þrír veggir á baðherbergjum eru flísalagðir og aðrir veggir í íbúðunum málaðir. Vélknúin loftræsting í aflokuðum rýmum.

Húsbyggjandi: H55 ehf
Aðalverktaki: Verkland ehf
Aðalhönnuður: Kristinn Ragnarsson
Verkfræðihönnun: New nordic Engineering
Raflagnahönnun: Voltorka ehf

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hafdís sölustjóri [email protected] GSM: 820-2222 og/eða aðrir fasteignasalar hjá Fasteignasölunni TORG, S: 520-9595 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 74.900.-

 

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

ÁbendingarHafa samband