Söluauglýsing: 1018042

Grensásvegur 1D

108 Reykjavík

Verð

79.800.000

Stærð

89

Fermetraverð

896.629 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli
hero

Staðsetning

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan TORG kynnir: **Bókið skoðun í 692-3344** Glæsileg 3ja herbergja íbúð á efstu og 5.hæð á Grensásvegi 1E, íbúð nr. 0502, sem skilast fullbúin án gólfefni, á þessum eftirsóttastað í útjaðri Skeifunnar að Laugardalnum, sem er eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar. Íbúðin er í göngufæri  við alla almenna þjónustu s.s í Glæsibæ og Skeifunni. Íbúðin er skráð skv. Þjóðskrá 92,3fm í góðu lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og sérgeymslu í sameign, skráð 9,2fm.  Gófhiti er í öllum rýmum og handklæðaofn í baði. Fallegar samrýmdar og sérsmíðaðar innréttingar frá IWA, vönduð rafmagnstæki frá Bsoch, meðal annars innfeldur ísskápur, innbyggð uppþvottavél, Spanhelluborð, ofn og Eico vifta yfir eyju og/eða Bosch vifta undir skáp, þar sem við á. Baðherbergi og ef um sér þvottaherbergi er að ræða, eru flísalögð með flísum frá Casalgrande Padana. Hreinlætistæki eru frá Grohe og sturtuklefi með hertu sturtugleri og niðurfalli í gólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Hrönn fasteignasali GSM: 692-3344, eða [email protected] 


Nánari lýsing: Alls eru áætlaðar allt að 204 íbúðir í þessu verkefni, sjá nánar á heimasíðu:  HEIMASÍÐA G1  Gert er ráð fyrir allt að um 4.000 m2 af atvinnuhúsnæði, þ.e. skrifstofu-, veitinga og verslunarhúsnæði, sem að mestu leyti er í sérinngangi í sjö hæða norðurenda B-húss, en einnig er atvinnuhúsnæði á jarðhæð meðfram Grensásvegi og á allri jarðhæð D-húss sem staðsett er á suðurenda lóðar. Heildarfjöldi bílastæða er rúmlega 180 stæði í kjallara á þremur hæðum. Einnig er m.a. að finna sameiginlega hjólageymslu í kjallara fyrir um 400 hjól. Fjöleignarhúsið skiptist í fjögur sjálfstæð hús ofanjarðar með sjö stigagöngum, sameiginlegum kjallara, bílastæðum og geymslum. Húsin verða fjögurra til sjö hæða, sjö hæðir á lóðinni til norðurs á móti Glæsibæ, fimm hæðir á miðri lóð og fjórar hæðir í suðurenda lóðar að Skeifunni. Frábært útsýni er frá efri hæðum sem snúa til norðurs, austurs og suðurs m.a. í átt að Esjunni, yfir Laugardalinn og yfir Skeifuna í átt að Bláfjöllum. Á milli húsanna er skipulagður sameiginlegur garður fyrir íbúa og snúa verandir stigaganga 1A, 1B, 1D, 1E og 1F að þeim garði. Inngangar inn í sum húsin liggja einnig í gegnum garðinn.  Göngustígar inni í garðinum verða steyptir/hellulagðir/malbikaðir að mestu leyti með snjóbræðslukerfi. Aðgengi inn í garðinn verður eingöngu fyrir gangandi og hjólandi fólk. Garðurinn verður opinn. Sólin skín frá suðri beint inn í inngarðinn á milli húsanna enda markmiðið að skapa skemmtilegan sælureit og leikaðstöðu. Gróður verður í garðinum og upp við íbúðir á jarðhæð sem snúa inn í garðinn. Sérafnotaréttur íbúða á jarðhæð er málsettur og afmarkaður með eins meters háum timburskjólveggjum. Frágangur á útjaðri lóðar verður vandaður og mun tengjast gangstéttum í kringum lóðina til að gera flæði fólks ofanjarðar og upp úr kjallara sem hentugast. Í allri hönnun er tekið tillit til fólks í hjólastólum eins og kröfur segja til um og í því samhengi verða t.d. átta lyftur í þeim fjórum húsum sem verða byggð á lóðarhluta I. Einnig verða fimm hjólastólastæði í bílakjallara með aðgengi upp á hæðir ofanjarðar.
Nánari upplýsingar má finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins HEIMASÍÐA G1  Fyrsti kafli skilalýsingar hafi verið almenn lýsing á lóðinni í heild sinni enda A-húsið hluti af heildarskipulagi lóðarinnar. A-húsinu tilheyra fyrstu 50 íbúðirnar sem byggðar verða á lóðinni með stigagangi á sitthvorum endahússins í suður og norður. 23 íbúðir tilheyra stigagangi 1D og 27 íbúðir tilheyra stigagangi 1E. Atvinnurými er ekki hluti af A-húsinu. Geymslur fylgja öllum íbúðum og eru þær staðsettar á fyrstu og annarri hæð kjallara og eru flestar þeirra í svokölluðum geymslugangi sem er aðgengilegur frá bílakjallara en nokkrar þeirra snúa beint út í bílakjallara. Íbúar hafa aðgengi að einu eða fleiri bílastæðum í bílakjallara gegn gjaldi. Hægt verður að velja um fleiri en eina áskriftarleið eftir viðveru. Einnig verður möguleiki á skammtímaleigu á stæðum yfir hluta úr degi í gegnum stæðakerfið sem byggir á myndavélakerfi við inn- og útkeyrslu í bílakjallara frá Skeifunni. Í A-húsi er lögð áhersla á litlar og meðalstórar íbúðir og er meðalstærð íbúða í húsinu með geymslu um 80 m2. Af 50 íbúðum eru sjö íbúðir eins herbergis, 15 tveggja herbergja, 27 þriggja herbergja og einungis ein fjögurra herbergja íbúð.Allar íbúðirnar eru innréttaðar á sama hátt. Íbúðum er skilað með eldhús-, bað- og þvottahúsinnréttingum (þvottahús er ekki í öllum íbúðum), ásamt fataskápum í forstofu og svefnherbergjum/fataherbergjum. Allar innréttingar eru í dökkum eikarlit í bland við hvítan akrýl sem er eitt það slitsterkasta efni sem völ er á í dag. Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða. Ofnar eru í sameign og á geymslusvæðum fyrir utan sjálfan bílakjallarann. Burðarkerfi byggingarinnar eru staðsteyptir veggir og gólf og eru svalir staðsteyptar. Stigar eru að mestu úr forsteyptum einingum. Í þriggja hæða kjallara undir A-húsinu eru staðsteyptir veggir og holplötur í þaki allra hæðanna þriggja. Allir útveggir verða einangraðir að utan með þéttull og klæddir með loftræstri álklæðningu, ýmist sléttri, bárulaga eða kassettum. Álklæðningin er samansett úr fjórum litum: RAL 9010, RAL 9006, RAL 2743 og C-Patina sem eru litir í brúnum og ljósum tónum. Innan íbúða verður stærsti hluti innveggja, þ.e. þeir sem ekki eru staðsteyptir, úr LEMGA léttsteypusteinum. Einungis lítill hluti veggja í húsinu verða gifsveggir. Sorpflokkun/sorplosun í húsinu er öll í sameiginlegri sorpgeymslu í kjallara innanhúss. Sorp verður losað um lúgur eftir tegund sorps. Engin sorpgeymsla eða flokkun er utandyra. Almennt gildir
að íbúðum verður skilað máluðum í ljósum litum og án gólfefna fyrir utan flísalögn á bað- og þvottaherbergjum. Veggir á baðherbergjum verða flísalagðir fyrir utan vegginn þar sem gengið er inn í baðherbergi. Handklæðaofn er í öllum baðherbergjum.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN SKOÐUNAR HJÁ SÖLUDEILD FASTEIGNASÖLUNNAR TORG, Hrönn Ingólfsdóttir fasteignasali GSM: 692-3344, eða [email protected] 

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
61.800.000 kr.88.20 700.680 kr./m²251431210.05.2022

63.900.000 kr.88.20 724.490 kr./m²251431512.05.2022

63.800.000 kr.88.20 723.356 kr./m²251432316.05.2022

64.800.000 kr.89.20 726.457 kr./m²251432619.05.2022

60.800.000 kr.88.20 689.342 kr./m²251430423.05.2022

45.600.000 kr.88.20 517.007 kr./m²251430122.06.2022

67.000.000 kr.88.20 759.637 kr./m²251431530.03.2023

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

ÁbendingarHafa samband