Söluauglýsing: 1251063

Óðinsgata 6A

101 Reykjavík

Verð

104.000.000

Stærð

115

Fermetraverð

904.348 kr. / m²

Tegund

Einbýli
hero

Staðsetning

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Elka, lgf., s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir gullmola í Þingholtunum í Reykjavík, 115 m² einbýlishús á tveimur hæðum með auka studíó-íbúð en húsið stendur á 370 m² eignarlóð.
Húsið er á tveimur hæðum með lítilli útleiguíbúð með sérinngangi á neðri hæð.  Á lóðinni er sólpallur með 6 m² geymsluskúr sem er ekki skráður inní fermetratölu eignar.
Einstök eign í miðborginni, húsið var byggt árið 1927 sem vinnustofa. Óðinsgata 6A stendur á baklóð úr alfararleið en samt nokkrum skrefum frá miðborginni og Óðinstorgi sem var opnað í nýrri mynd árið 2020.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali í síma 863-8813, tölvupóstur [email protected] eða Guðný Ösp Fasteignasali í síma 665-8909, tölvupóstur [email protected] .

Nánari lýsing;
Húsið hefur verið mikið endurnýjað, t.d. er búið að endurnýja raflagnir og töflu, ofna og ofnalagnir, klóaklagnir, drenlagnir, gler og glugga. 
Aukin lofthæð er á efri hæð hússins og fallegir viðarbitar í loftum en lofthæð á neðri hæð hússins er um 2,0 metrar.  Loft á efri hæð var endurnýjað fyrir nokkrum árum og klætt.
Gengið er inn í alrými hússins sem er eldhús og stofa með flotuðu og lökkuðu gólfi með gólfhita.  Fallegir viðarbitar í loftinu setja skemmtilegan svip á alrýmið.
Eldhús er með eldri innréttingum en borðplata hefur verið endunýjuð.  
Stofan er björt og rúmgóð með fallegum gluggum.  Vinnuaðstaða hefur verið stúkuð af alrými með hillum. 
Tvö baðherbergi eru í húsinu.  Baðherbergi á efri hæð er með flotuðu gólfi, flísalögðum veggjum og sturtuklefa með gleri.  Endurnýjuð innrétting, skápar, handklæðaofn, loftræsting og tengi fyrir þvottavél.
Gengið er niður á neðri hæð hússins um stiga úr alrými á efri hæð:
Þar eru þrjú svefnherbergi í dag, þvottahús, geymsla og baðherbergi.
Hægt er að ganga inn í eitt herbergið um sérinngangi, þar er einnig baðherbergi og aðgangur að þvottahúsi/geymslu.  Þetta herbergi hefur verið leigt út.
Innangengt er á milli þvottahúss og hinna svefnherbergjanna tveggja sem tilheyra aðalíbúð og er því hægt að nýta húsið allt í senn eða leigja frá sér hluta neðri hæðar og loka á milli á einfaldan hátt.

Húsið stendur á 370 m² eignarlóð sem er sameiginleg með Óðinsgötu 6, lóðin er mjög skjólsæl og snyrtileg.  Hellulagður göngustígur að húsi og sér pallur sunnanmegin við húsið með geymsluskúr.
Staðsetning hússins er einstaklega góð á rólegum og kyrrlátum stað í miðborginni.  Falinn gullmoli í miðborginni með ýmsum möguleikum.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali í síma 863-8813 tölvupóstur [email protected] eða Guðný Ösp Fasteignasali í síma 665-8909, tölvupóstur [email protected] .

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

ÁbendingarHafa samband