Ægisíða 80, 107

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 426
Tegund Einbýli
Verð per fm
Skráð 17.9.2021
Fjarlægt 26.9.2021
Byggingarár 1958
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Eitt glæsilegasta húsið við Ægisíðu með ósnortið sjávarútsýni. .  Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson og er mjög glæsilegt og hefur það verið friðað sem slíkt, þ.e. ytra útlit.  Hússins er víða getið þegar fjallað er um íslenska byggingarlist.  Húsið er hannað út í hörgul í fallegum og hreinum stíl. Glæsilegt útsýni. 
 
426 fm hús á þremur hæðum.  Séríbúð er á jarðhæð.  Á 2. hæðinni er forstofa, gestasnyrting, hol, stórar stofur, borðstofa, eldhús, búr, þvottahús. Útgengt er út á stóra verönd frá stofu/borðstofu.  Á 3. hæðinni eru 4 herb. (6 skv. teikningu), tvö baðherbergi, þar af hjónasvíta með baðherbergi og útgang út á stórar svalir. Á jarðhæð er  herbergi til vesturs,  stórt baðherbergi,  gangur, miklar geymslur, baðherbergi, mjög stórt herbergi til suðurs með útgengi út í garð, auk sér 2ja herbergja íbúðar sem skiptist í forstofu,  hol, herbergi, 
baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu. 
 
Nánari lýsing: Á aðal hæðinni er komið inn í flísalagða forstofu sem er með miklum skápum en innaf henni er flísalögð gestasnyrting. Úr forstofunni er komið í rúmgott hol. Á milli holsins og forstofunnar annars vegar og holsins og stofunnar er sandblásið glerlistaverk eftir Svavar Guðnason.  Stofurnar eru til suðurs og eru þær mjög rúmgóðar og með miklum gluggum út haf, sérhönnuðum hillum og stórum arinn. Stofan er parketlög.  Úr stofunni er gengið út á flísalagðar mjög stórar svalir sem eru yfir bílskúrnum en þar eru miklir skjólveggir.  Borðstofan er parketlögð. Eldhúsið er innaf holinu en tengist einnig borðstofunni. Það er mjög rúmgott með tekkinnréttingu sem opnast að hluta til inn í borðstofuna. Innaf eldhúsinu er búr. Rúmgott þvotthús er á hæðinni. Úr holinu er gengið uppá 2. hæð. Þar er komið upp teppalagðan stiga og inn á parketlagðan svefnherbergisgang.  Út af honum eru herbergin. Skv. teikn. eru fimm barnaherbergi en í dag eru þau þrjú. Öll með parketi á gólfi. Skápar eru í öllum herbergjum. Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa og glugga. Við enda gangsins er skóskápur og hjónaherbergi sem er með parketi á gólfi.  Miklir skápar eru í hjónaherbergi og innaf því er sér  baðherbergi sem er flísalagt. Útaf hjónaherbergi er gengið útá stórar svalir.  Jarðhæð: komið niður á gang og til hægri (NV) er herbergi, rúmgott baðherbergi. Við enda gangsins er mjög stórt herbergi til suðurs. Það er með parketi á gólfi og útgangi út á lóðina.  ÍBÚÐIN:  komið er inn í forstofu og síðan í innra hol sem er með skápum. Innaf holinu er geymsla. Innangegnt er í íbúðina úr húsinu og einnig sérinngangur. Úr holinu er komið í stofu en innaf henni er eldhús.  Baðherbergið er flísalagt og með glugga og sturtuklefa. Tvöfaldur bílskúr er við húsið.
 
ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐUM Í EIGNINA

Nánari upplýsingar gefur Guðlaugur Ingi Guðlaugsson lögg.fasteignasali í síma 864-5464 eða gudlaugur@eignamidlun.is.

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27