Skipholt 7, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 59,9
Stærð 69
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 867
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 1954
mbl.is

Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna til sölu fallega og vel skipulagða 2ja herbergja, 69,1 m2 íbúð á 3.hæð á eftirsóttum stað við Skipholt 7.
Í húsinu eru 6 íbúðir og gott aðgengi að bílastæðum.


Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:

Forstofa: Með fataskáp og ljósum flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa: Eru í opnu og björtu rými ásamt eldhúsi. Frá stofu er gengið út á svalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Falleg ljós innrétting með með góðu skápaplássi og eikar borðplötu. Ljósar flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart svefnherbergi með stórum og góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Með ljósri innréttingu, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt hólf í gólf með ljósum flísum. 
Geymsla: 6,8 m2 sér geymsla er á 1.hæð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er í sameign á 1.hæð. 
Bílastæði: Gott aðgengi er að bílastæðum bæði fyrir framan húsið og eins eru bílastæði í porti á bakvið hús sem eru einungis ætluð íbúum.

Um er að ræða góða eign á eftirsóttum stað þar sem örstutt er í miðbæinn og öll helsta þjónusta er innan seilingar. 

Þetta er eign sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar veitir:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27