Grenimelur 35, 107

Fjarlægð/Seld - Eignin var 11 dag á skrá

Verð 165,9
Stærð 219
Tegund Hæðir
Verð per fm 756
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt 1.5.2024
Byggingarár 1945
mbl.is

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, lögg. fasteignasali kynna í einkasölu falleg sérhæð með bílskúr í reisulegu húsi við Grenimel 35, 107 Reykjavík. Húsið var teiknað af Halldóri H. Jónssyni arkítekt árið 1945 og hefur fengið mjög gott og reglulegt viðhald. Íbúðin er á einni hæð, 172,3 fm, auk 47 fm bílskúrs, geymslu og sameignar, samtals 219,3 fm samkvæmt HMS. Íbúðin er töluvert endurnýjuð. 

Skipulag telur forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, bókaherbergi, svefnherbergisgang, 4 svefnherbergi, svalir, baðherbergi, geymslu-kompu, þvottahús í kjallara, bílskúr og sér geymslu í kjallara bílskúrs. Pallur fyrir aftan bílskúrinn og stór sameiginlegur garður í góðri rækt.

Smelltu hér til að fá söluyfirliti en allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða thorey@landmark.is.

 
Nánari lýsing: 
Forstofa
 er flísalögð, stigahol með teppi. 
Hol er parketlagt, með góðum fataskáp, og þaðan er gengið inn í eldhús, stofu, bókaherbergi og svefnherbergisgang.
Eldhús er rúmgott og parketlagt. Mjög falleg upprunaleg innrétting úr birds eye viði á einum vegg, ljós IKEA innrétting á öðrum. Uppþvottavél, gas-helluborð og bakarofn. 
Borðstofa er rúmgóð, björt og parketlögð. Rennihurð með frönskum gluggum skilur hana frá stofunni. 
Stofa er parketlögð, stór og björt með glæsilegum glugga til suðurs og vesturs, og útsýni yfir garðinn. Gengið inn í stofu frá holi og borðstofu. 
Bókaherbergi er parketlagt og skilið frá stofu með rennihurð, en einnig er gengið inn í það frá holi. Innbyggðar bókahillur þekja einn vegg herbergisins. Bókaherbergið gæti vel nýst sem fimmta svefnherbergið.
Kompa inn af holi er lítil og dúkalögð. Þar er búið að leggja rafmagn fyrir þvottavél, og væri hægt að komast í vatn og niðurfall.
Svefnherbergisgangur er parketlagður, og þaðan er gengið inn í svefnherbergin og baðherbergið.
Svefnherbergi 1 er parketlagt með fataskáp og stórum glugga til suðurs, útgengt á vestur-svalir.
Svefnherbergi 2 er parketlagt með stórum glugga til suðurs.
Svefnherbergi 3 er parketlagt með stórum innbyggðum fataskáp og glugga til vesturs.
Svefnherbergi 4 er parketlagt með glugga til norðurs. Svefnherbergi 3 og 4 voru áður eitt herbergi og hægt að sameina aftur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með flísum frá Birgisson. Sturta, innbyggð blöndunartæki, handklæðaofn og upphengt klósett. Tekk-innrétting með hvítum vaski.
  
Þvottahús er í kjallara, og er sameiginlegt (notað af 2-3 íbúðum). 
Bílskúr er rúmgóður með hita og rafmagni. Undir bílskúrnum er geymsla.
Garður er stór og hefur fengið gott viðhald. Hann er umlukinn runnagróðri og reynitrjám og með þó nokkrum fjölærum plöntum. Í horni garðsins er trépallur umlukinn skjólgirðingu.
 
Eigninni hefur verið vel viðhaldið síðustu ár:
2023 - Neyslu- og ofnalagnir í húsi endurnýjaðar
2023 - Skipt um skólplagnir í húsi (og allt asbest fjarlægt)
2023 - steypuviðgerðir og málun á vegg um ruslageymslu
2023 - frárennslislögn út í götu lagfærð og henni afsalað til Veitna
2022 - Skjólveggur málaður
2022 - Skipt um grindverk
2017 - Baðherbergi endurnýjað að fullu
2016 - Steypuviðgerðir og endursteinun
2016 - Skipt um þakrennur
2016 - Skipt um þá glugga, pósta og gler sem þörfnuðust endurnýjunar í húsinu
2014 - Skipt um gler og glugga-pósta í vesturhluta íbúðar
2008 - Skipt um gler og glugga-pósta í austurhluta íbúðar
2003 - eða svo, parketlagt, skipt um hluta eldhúsinnréttingar
1998 - Dren lagt fyrir framan hús og skipt um allar skólplagnir í lóð

Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49